Assange sett ströng skilyrði um ferðir 17. desember 2010 04:30 Julian Assange í dómsal í London. nordicphotos/AFP
Mikil fagnaðarlæti brutust út meðal stuðningsmanna Julians Assange, stofnanda Wikileaks, þegar dómari í London kvað upp þann úrskurð að honum skyldi sleppt gegn tryggingu. „Ég er ekki sammála því að Assange telji sig hafa ástæðu til að mæta ekki,“ sagði Duncan Ousley, dómari áfrýjunarréttar. „Hann hefur greinilega einhvern vilja til þess að hreinsa nafn sitt.“ Ousley staðfesti þar með úrskurð undirréttar frá því á þriðjudag. Greiða þurfti tryggingafé að upphæð 200 þúsund pund, en sú fjárhæð samsvarar rúmlega 36 milljónum króna. Auk þess þarf Assange að bera á sér staðsetningarbúnað, gefa sig daglega fram við lögreglu og má ekki fara út að kvöld- eða næturlagi. Hann þarf að búa á sveitasetri í austanverðu Englandi, sem er í eigu Vaughans Smith, eins stuðningsmanna Wikileaks. Assange hefur verið í fangelsi síðan 7. desember vegna framsalskröfu frá Svíþjóð, þar sem hann er sakaður um kynferðisbrot gegn tveimur konum. Búast má við því að nokkrar vikur líði áður en breska dómskerfið tekur ákvörðun um það hvort hann verði framseldur til Svíþjóðar.- gb
Mest lesið Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Fleiri fréttir Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Sjá meira