Innlent

Nýr samningum um Vaktstöð siglinga undirritaður

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þau Þórhallur Arason skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu, Hermann Guðjónsson siglingamálastjóri, Þórhallur Ólafsson forstjóri Neyðarlínunnar og Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri í samgönguráðuneytinu voru kampakát við undirskrift.

Í hádeginu í dag var undirritaður nýr þjónustusamningur milli Siglingastofnunar Íslands og Neyðarlínunnar um rekstur Vaktstöðvar siglinga. Eldri samningur hefur verið í gildi frá árinu 2004.

Samkvæmt samningnum hefur Siglingastofnun með höndum fjárhagslegt og faglegt eftirlit með rekstrinum, sinnir samskiptum við stjórnvöld og samstarfi við alþjóðastofnanir um siglingamál. Neyðarlínan sér um fjármál og rekstur vaktstöðvarinnar og gerir samninga við verktaka þar um.

Nýlega var allur fjarskiptabúnaður vaktstöðvarinnar endurnýjaður og óðum er nýtt og betra vöktunarkerfi að leysa hið eldra af hólmi, samkvæmt frétt frá Siglingamálastofnun. Með nýjum samningi næst meðal annars. endurskipulagning og hagkvæmari rekstur á starfsemi og búnaði stöðvarinnar. Þar með er einnig nauðsynlegum niðurskurði á framlögum ríkisins mætt og sparnaðarmarkmiðum náð.

Samkvæmt samningnum mun Siglingastofnun Íslands greiða Neyðarlínunni 242 milljónir á ári fyrir að annast rekstur vaktstöðvarinnar.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×