Ekki fyrir lofthrædda 3. ágúst 2010 06:00 Símsmiðir, sem sinna viðhaldi og viðgerðum á möstrum Mílu, þurfa oft að brjóta snjó og klaka utan af möstrunum til að komast að bilunum. Hér þurfti að brjóta ísinn af farsímamastri á Skjöldólfsstaðahnjúki.Mynd/Davíð Arngrímsson
Mikið álag hefur verið á litlum hópi símsmiða hjá Mílu undanfarin ár vegna uppbyggingar á þriðju kynslóðar farsímakerfi. Einn símsmiðanna segir starfið geta verið erfitt en að honum líði jafn vel í hæsta mastrinu, sem er 412 metra hátt, og á jörðu niðri. Davíð Arngrímsson, símsmiður hjá Mílu, segir að mastramennirnir séu fimm til sex á hverjum tíma og flestir hafi verið lengi í starfinu. Hópurinn ferðast á milli staða, setur upp möstur og staura, sinnir viðhaldi og gerir við þegar eitthvað bilar. „Þetta getur verið erfitt starf, og er alls ekki rétta starfið fyrir lofthrædda,“ segir Davíð. Hann kann vel við sig í starfinu, og hefur gaman af ferðalögunum og félagsskapnum sem þeim fylgir. „Þetta er eins og með önnur störf, sumum finnst þetta spennandi og áhugavert. Svo koma aðrir sem staldra stutt við,“ segir Davíð. Hann segir starfið oft líkamlega krefjandi, en í raun sé það ekki hættulegt þótt hann og aðrir þurfi gjarnan að klífa möstur við misjafnar aðstæður. „Við förum á fjöll í öllum veðrum, það bilar ekkert í góðu veðri,“ segir Davíð. Hann segir að á þeim átján árum sem hann hafi sinnt þessu starfi hafi ekkert alvarlegt óhapp átt sér stað. Spurður hvort hann hafi einhvern tímann orðið virkilega hræddur uppi í mastri segir Davíð að varla sé hægt að segja það. „Mér hefur vissulega brugðið. Það slitnaði stag á mastri þegar við félagi minn vorum í 70 eða 80 metra hæð. Við flýttum okkur niður, en við sáum ekki í gegnum mastrið, það gekk í svo miklum bylgjum.“ brjann@frettabladid.is Toppstarf Það er ekkert fyrir lofthrædda að gera við möstur, hér er Davíð Arngrímsson í um 60 metra hæð í mastri við Grindavík.
Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Eldur logaði í Stykkishólmi Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent Fleiri fréttir Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Hvað er í boði um Verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Lýsa eftir landnámshænu við KFC í Hafnarfirði Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Sjá meira