Óttast hrun í bóksölu með hærri virðisauka 3. ágúst 2010 04:00 Kristján B. Jónasson
Bókaútgefendur eru uggandi vegna hugmynda um hækkun á virðisaukaskatti á bókum úr 7 prósentum í 25,5 prósent. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur meðal annars lagt slíkt til. Kristján B. Jónasson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, birti grein um málið í Fréttablaðinu á miðvikudag en hann segir að sala á bókum gæti dregist mikið saman í kjölfar hækkunar. „Ef tillagan gengur eftir og skatturinn verður hækkaður úr 7 prósentum í 25,5 prósent, eins og lagt er til í skýrslunni, þá er það mjög mikil hækkun fyrir svona viðkvæma vöru," segir Kristján. „Ef við tökum fjölskyldu með tvö börn á framhaldsskólaaldri sem kaupir notaðar námsbækur þá ver slík fjölskylda á ári, varlega áætlað, þrjátíu þúsund krónum í námsbækur fyrir hvort barn. Hækkunin myndi auka bókakostnað fyrir slíka fjölskyldu um tíu þúsund," segir Kristján enn fremur. Þann 12. júlí síðastliðinn birti fjármálaráðuneytið skýrslu um íslenska skattkerfið sem AGS hafði unnið fyrir ráðuneytið. Ein af tillögum skýrsluhöfundar er að leggja niður svokallaðar „óvenjulegar undanþágur" frá almennri virðisaukaskattsprósentu sem er 25,5 prósent. Lagt er til að lægsta þrep skattsins, sem nú er sjö prósent, verði hækkað í fjórtán prósent og nái þá einungis yfir matvöru á meðan allt annað beri 25,5 prósenta skatt. Í grein sinni bendir Kristján á að í upphafi árs 2009 hafi stjórnvöld í Lettlandi hækkað virðisaukaskatt á bækur úr fimm prósentum í 21 prósent. Í kjölfarið hafi heildarvelta bókaútgáfunnar þar í landi dregist saman um 35 prósent að meðaltali. Spurður hvort búast megi við sams konar áhrifum hérna segir Kristján: „Ég væri nú að ýkja ef ég segði að hækkunin hér væri líkleg til að hafa svona mikil áhrif en hún færi beint út í verðlagið sem myndi valda því að bóksala drægist töluvert mikið saman." Kristján segist hafa rætt við bóksala hér á landi um málið og þeir hafi reiknað út að ef 15 til 20 prósent af heildarkökunni hverfi, sem svartsýnustu spár gera ráð fyrir, þá sé þetta bara búið og ekki verði mögulegt að reka þessi fyrirtæki með sama hætti og áður. Sigurður Pálsson, rekstrarstjóri Bóksölu stúdenta sem flytur inn erlendar kennslubækur fyrir háskólanema, segir hækkun koma nemendum mjög illa. „Að sjálfsögðu hef ég áhyggjur," segir Sigurður og bætir við að þetta þýði rúmlega sautján prósenta verðhækkun fyrir þennan viðkvæma hóp. „Ég er nú ekki mikið búinn að hugsa um þetta þar sem þetta liggur ekki fyrir en verði af þessu hef ég miklar áhyggjur af stúdentum," segir Sigurður. magnusl@frettabladid.is
Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Eldur logaði í Stykkishólmi Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent Fleiri fréttir Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Hvað er í boði um Verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Lýsa eftir landnámshænu við KFC í Hafnarfirði Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Sjá meira