Stígamót þurftu að loka á sex stöðum á landsbyggðinni Erla Hlynsdóttir skrifar 23. september 2010 13:35 Úr Kvennaathvarfinu. Ekkert athvarf er á landsbyggðinni fyrir konur sem beittar eru ofbeldi
Konur á landsbyggðinni hafa minni möguleika á að leita sér aðstoðar vegna ofbeldis í nánum samböndum en konur á höfuðborgarsvæðinu. Fjárhagur þeirra félaga sem aðstoða konur sem eru beittar ofbeldi er af mjög skornum skammti og fer minnkandi. Þetta kemur fram í skýrslu sem Guðrún Helga Sederholm vann fyrir félags- og tryggingamálaráðuneytið. Skýrslan ber heitið „Rannsókn á ofbeldi gegn konum. Þjónusta 11 félagasamtaka" og er vinnsla hennar þáttur í aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn ofbeldi karla gegn konum í nánum samböndum. Búist við lokun á Ísafirði Aðeins eitt kvennaathvarf er á landinu og er það í höfuðborginni. Ekkert athvarf er á landsbyggðinni. Stígamót þurftu að hætta starfsemi á sex stöðum úti á landi vegna fjárskorts á síðasta ári. Aflið á Akureyri þjónustar nærbyggðirnar og Sólstafir á Ísafirði standa frammi fyrir lokun þar sem engu fé hefur verið veitt til starfseminnar á árinu. Kvennaráðgjöfin hefur aðsetur í höfuðborginni. Þjónustumiðstöð Miðborgar- og Hlíða hefur þjónustað erlendar konur sérstaklega. Samtökin eru fæst á fjárlögum. Fjármagn fá þau helst frá félagsmálaráðuneyti, sveitarfélögum og með frjálsum framlögum. Styrkbeiðnir á ýmsa aðila og fyrirtæki eru liður í fjáröflum flestra samtakanna. Gjafir berast sumum en stopult þannig að fjármögnunin er óútreiknanleg frá ári til árs. Dregur úr framlögum Í dag er staðan sú að dregið hefur verulega úr framlögum til flestra félagasamtakanna. Þau þurfa mismikið fé eins og Kvennaráðgjöfin sem þarf lítið fjármagn miðað við Kvennaathvarfið. Stígamót eru á fjárlögum ríkisins og er fjárframlagið ákveðið á hverju ári. Síðastliðin sex ár hefur Stígamót verið með þjónustusamning við Reykjavíkurborg og sú upphæð verið hin sama ár hvert þannig að raunlækkun hefur verið mikil. Guðrún Helga kynnti niðurstöðu rannsóknar sinnar á opnum fundi í Iðnó í dag. Þar hélt Ingólfur V. Gíslason einnig erindi um rannsókn sína á viðbrögðum heilbrigðisþjónustunnar við ofbeldi gegn konum.
Tengdar fréttir Skortur á skimun fyrir ofbeldi gegn konum Hvergi í almenna heilbrigðiskerfinu eru spurningar um reynslu af ofbeldi hluti af almennum upplýsingum um skjólstæðinga. Þegar kemur að ákveðnum áhættuhópum, fyrst og fremst fíklum, þá er hins vegar spurt með reglubundnum hætti. Árvekni heilbrigðisstarfsfólks hefur aukist gagnvart öðrum þekktum áhættuhópum svo sem konum af erlendum uppruna. 23. september 2010 10:14 Mest lesið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Sjá meira
Skortur á skimun fyrir ofbeldi gegn konum Hvergi í almenna heilbrigðiskerfinu eru spurningar um reynslu af ofbeldi hluti af almennum upplýsingum um skjólstæðinga. Þegar kemur að ákveðnum áhættuhópum, fyrst og fremst fíklum, þá er hins vegar spurt með reglubundnum hætti. Árvekni heilbrigðisstarfsfólks hefur aukist gagnvart öðrum þekktum áhættuhópum svo sem konum af erlendum uppruna. 23. september 2010 10:14