Cristiano Ronaldo: Rooney nær sér aftur á strik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. október 2010 09:30 Cristiano Ronaldo og Wayne Rooney fagna marki fyrir Manchester United. Mynd/Nordic Photos/Getty
Cristiano Ronaldo, fyrrum félagi Wayne Rooney hjá Manchester United, er viss um að enski landsliðsframherjinn nái sér aftur á strik eftir erfiðar vikur innan sem utan vallar. Rooney á enn eftir að spila sinn fyrsta leik síðan að hann skrifaði undir nýjan fimm ára samning. „Wayne er ekki búinn að byrja þetta tímabil sérstaklega vel en hann er enn frábær leikmaður og ég er viss um að hann fari að sýna það fljótt aftur," sagði Cristiano Ronaldo við The Sun. „Hann hefur tekið þá ákvörðun að spila áfram með United og við verðum öll að virða það. Það er ekki mitt hlutverk að gefa honum ráð en ég veit samt að þessir hlutir geta breyst mjög snögglega," sagði Ronaldo sem var seldur fyrir metupphæð til Real Madrid. „Ég byrjaði heldur ekki þetta tímabil vel. Það er erfitt að spila alltaf í toppbolta. Ég hélt ró minni, vann vel og skilaði mínu starfi til liðsins. Skyndilega duttu inn nokkur mörk hjá mér og allt breyttist," sagði Ronaldo sem hefur skorað 9 mörk í spænsku deildinni til þess á tímabilinu. „Fótboltinn er bara þannig íþrótt. Stundum er maður ekki að spila vel en svo skorar maður mark og allt viðmót breytist. Það mun líka gerast hjá Wayne," sagði Ronaldo. „Ég naut þeirra fimm ára sem ég spilaði fyrir Sir Alex Ferguson. Við náðum alltaf vel saman og ég tel hann vera vin minn í dag auk þess að vera frábær stjóri. Ferguson og Mourinho eru að mínu mati bestu stjórarnir í heimi, annar er ungur en hinn er eldri. Þeir hafa unnið allt í fótboltanum," sagði Ronaldo að lokum.
Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Fleiri fréttir Ipswich - Liverpool | Kemur fyrsti sigurinn? Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Sjá meira