Fólk verður flutt í tjaldbúðir 23. janúar 2010 03:00 Langar biðraðir Haítíbúar bíða í biðröð eftir matarpökkum hjá dreifingarstöð Sameinuðu þjóðanna. nordicphotos/AFP
Stjórnvöld á Haítí ætla að hjálpa um 400 þúsund manns að flytja úr höfuðborginni Port-au-Prince í nýjar tjaldborgir utan við borgina. Tilgangurinn er sá að koma í veg fyrir að smitsjúkdómar breiðist út meðal borgarbúa, sem hafa þurft að hola sér niður hvar sem þeir geta eftir að harður jarðskjálfti lagði borgina nánast í rúst snemma í síðustu viku. Tjaldborgirnar verða mun öruggari vistarverur með hreinlætisaðstöðu sem á að tryggja að heilsu fólks sé ekki stefnt í voða. Nú þegar hafa að minnsta kosti 200 þúsund manns flúið borgina á troðfullum langferðabílum og ferjum, og margir bara fótgangandi. Flestir reyna að komast til ættingja sinna í sveitahéruðum landsins. Rétt utan við borgina hafa risið meira en 500 hverfi bráðabirgðaskýla sem fólk hefur tjaslað saman úr pappa, spýtum, teppum og hverju öðru sem til fellur. Þar búa nú hátt í 500 þúsund manns. Björgunarfólk telur litlar líkur á að fleiri finnist á lífi í rústunum. Jarðskjálftinn, sem mældist 7,0 stig, varð líklega um 200 þúsund manns að bana. Um 250 þúsund manns hlutu misalvarleg meiðsli og um tvær milljónir misstu húsaskjól. - gb
Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Sækja slasaðan mann að Háafossi Innlent Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Rannsaka manndráp á Kársnesi Innlent Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Innlent Fleiri fréttir Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Sjá meira