Arnar: Erfitt að vita ekki hver verður þjálfari Vals á morgun Elvar Geir Magnússon skrifar 31. ágúst 2010 07:30 Arnar í leik Vals og KR í sumar. Fréttablaðið/Valli
Valsmenn gerðu góða ferð á Selfoss í gær og náðu í þrjú verðskulduð stig. Í fyrri hálfleik fóru þeir hreinlega á kostum og refsuðu varnarmönnum Selfyssinga fyrir að sofa á verðinum með því að skora tvívegis. Selfyssingar náðu að minnka muninn úr vítaspyrnu en Valsmenn voru ekki lengi að svara eftir slæm markmannsmistök. Aftur minnkuðu heimamenn muninn og hleyptu spennu í lokamínúturnar. Með smá heppni hefðu þeir getað nælt sér í stig en sigur Valsmanna var sanngjarn enda stjórnuðu þeir ferðinni langstærstan hluta leiksins. „Eigum við ekki að segja að við höfum bara ákveðið að gefa áhorfendum smá spennu," sagði Arnar Sveinn Geirsson, leikmaður Vals, glettinn eftir leik. „Mér fannst það mjög klaufalegt hjá okkur að hleypa þeim inn í leikinn með því að gefa þeim mark en við fengum þrjú stig og þá er mér alveg sama." Mikil neikvæð umræða hefur verið kringum Valsliðið að undanförnu. „Eftir það sem á undan hafði gengið var gríðarlega mikilvægt fyrir alla hjá Val að vinna, bæði fyrir Gulla (Gunnlaug Jónsson), okkur og félagið í heild. Það er gott að fara í tveggja vikna frí með sigur á bakinu," sagði Arnar. „Við sýndum það ágætlega úti á vellinum að við stöndum allir saman. Það var sama hvað gekk á. Við fengum tvisvar á okkur mark og svo mikla pressu. Við stóðumst hana og það bara sýnir karakterinn í þessu liði að það var enginn að fara að gefast upp." Arnar Sveinn segir að það sé nóg eftir af mótinu til að gera ágætis hluti. „Það hefur mikil óvissa verið í gangi og erfitt að láta það ekki hafa áhrif á sig. Það er erfitt að sitja inni í klefa og vita ekki hver verður þjálfarinn manns á morgun. En það er sem betur fer allt komið á hreint núna og við erum hrikalega ánægðir með það. Við erum ánægðir með Gulla og ætlum að klára tímabilið með stæl," sagði Arnar.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Íslenski boltinn Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Handbolti Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist Fótbolti Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Enski boltinn Kansas frá Kansas til Kansas Sport Glódís framlengir samninginn við Bayern Fótbolti Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Fótbolti Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Tryggðu þrjú lið í úrslitakeppnina Sport Fleiri fréttir Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum Sjá meira