Enski boltinn

Babel: Ég er ekki á förum frá Liverpool

Elvar Geir Magnússon skrifar
Ryan Babel.
Ryan Babel.

Hollendingurinn Ryan Babel er ekki á förum frá Liverpool. Þetta segir hann á twitter-síðu sinni.

Talið var líklegt að hann myndi yfirgefa herbúðir Liverpool áður en félagaskiptaglugganum yrði lokað og voru Tottenham og West Ham nefnd til sögunnar.

„I'm going no where... #LFC all The Way ...#ynwa !!!" skrifaði Babel á twitter-síðuna fyrir stuttu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×