Innlent

Stjórnlagaþing tryggi sjálfstæði dómstóla

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, vill að stjórnlagaþing sem tekur til starfa í febrúar á næsta ári tryggi sjálfstæði dómstóla þegar stjórnarskráin verður endurskoðuð. Einnig sé brýnt að stjórnarskráin sé rýmri þegar kemur að þjóðaratkvæðagreiðslum.

Rætt var við Ólaf í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni á sjötta tímanum í dag. Þar var hann meðal annars spurður út í stjórnalagaþingið og hvaða atriði hann teldi mikilvægt að breyta í stjórnarskránni.

Ólafur sagði óháð dómsvald ekki tryggt í stjórnarskránni. „Staða Hæstaréttar og dómstólanna og sjálfstæði þeirra er ekki tryggt í íslenskri stjórnarskrá. Hún er mjög fátækleg varðandi þennan þriðja þátt ríkisvaldsins."

Ólafur sagði að einn ráðherra ætti ekki að hafa vald til að skipa dómara við Hæstarétt. Það væri ekki vænleg leið til að byggja upp traust.

„Því miður vantar nánast allt í stjórnarskrána sem tryggir sjálfstæði dómsvaldsins. Það er mjög mikilvægt sérstaklega á þessum tímum þegar mikil gagnrýni er uppi og við þurfum að fara með mörg mál til dómstólanna," sagði Ólafur.

Um þjóðaratkvæðagreiðslur sagði hann: „Ég hef líka verið þeirra skoðunar að stjórnarskráin ætti að vera rýmri hvað snertir þjóðarakvæðagreiðslur og rétt þjóðarinnar."

Kosningar til stjórnlagaþings fara fram 27. nóvember næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×