Innlent

Kostnaður reyndist hærri en spáð var

klæðalausar útsölugínur Verð á fatnaði hækkaði meira milli mánaða en greiningaraðilar höfðu spáð. Fréttablaðið/valli
klæðalausar útsölugínur Verð á fatnaði hækkaði meira milli mánaða en greiningaraðilar höfðu spáð. Fréttablaðið/valli
Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,74 prósent á milli mánaða og mælist verðbólga nú 3,3 prósent samanborið við 3,7 prósent í september. Sé húsnæðisliður tekinn úr tölunum mælist verðbólga nú 4,6 prósent.

Þetta er nokkuð minna en greiningaraðilar gerðu ráð fyrir. IFS Greining spáði 3,1 prósents verðbólgu í mælingunni en Greining Íslandsbanka 3,0 prósentum. Helst munar um meiri hækkun á húsaleigu, hitaveitukostnaði, flugferðum til útlanda og matvöruverði en gert var ráð fyrir.

Greining Íslandsbanka segir mælingu ekki breyta spá um verðbólguþróun næstu mánuði. Verðbólga muni hækka næstu mánuði fram til áramóta vegna frekari áhrifa af hækkun veitufyrirtækja og verðhækkunum á landbúnaðarhrávörum erlendis. Verðbólgan muni engu síður hjaðna hægt og bítandi.

Greining bankans gerði ráð fyrir því fyrir mánuði að verðbólga verði komin niður að langþráðum verðbólgumarkmiðum Seðlabankans um næstu áramót og standi þá í 2,4 prósentum. - jab



Fleiri fréttir

Sjá meira


×