Innlent

Beitti felgulykli gegn lögreglu

Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn í Kópavogi þar sem hann var að reyna að stela dekkjum undan bifreið í bænum.

Tilkynning um grunsamlegar mannaferðir barst lögreglu á fjórða tímanum og héldu lögreglumenn þegar á vettvang. Sá óprúttni reyndi að komast undan á tveimur jafnfljótum en var hlaupinn uppi af lögreglumönnum.

Þjófurinn var ekkert á því að gefast upp og beitti felgulykli til að reyna að forðast handtöku. Það hafði ekkert að segja og var maðurinn yfirbugaður fljótt og örugglega og síðan færður í fangageymslu.- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×