Íslenski boltinn

Gunnar semur við FH

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gunnar hefur leikið sinn síðasta leik fyrir KR í bili.
Gunnar hefur leikið sinn síðasta leik fyrir KR í bili.

FH-ingar fengu fínan liðsstyrk í dag þegar Gunnar Kristjánsson samþykkti að skrifa undir tveggja ára samning við félagið. Gunnar kemur til FH frá KR.

Gunnar er uppalinn KR-ingur sem var lánaður til FH um mitt síðasta sumar. Tækifærin sem hann fékk hjá KR voru af skornum skammti og því ákvað hann að söðla um.

KR-ingar vildu samt halda Gunnari en hann ákvað að veðja á FH að þessu sinni.

 



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×