Jón Sigurðsson merktur á nýju ári Jón Hákon Halldórsson skrifar 29. desember 2010 16:37 Styttan af Jóni stendur við Austurvöll. Mynd/ GVA.
Afmælisár Jóns Sigurðssonar forseta rennur upp á nýársdag, en hann fæddist á Hrafnseyri við Arnarfjörð 17. júní 1811. Afmælisins verður minnst með margvíslegum hætti allt árið en merking styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli markar upphaf afmælishaldsins. Einar Jónsson myndhöggvari gerði styttuna og lágmyndina „Brautryðjandinn" í tilefni af 100 ára afmæli Jóns Sigurðssonar 1911 og hún var reist fyrir framan Stjórnarráðshúsið 10. september það ár. Styttan var flutt á Austurvöll 1931. Strax árið 1911 var rætt um að merkja styttuna og oft hefur verið minnst á það síðan en aldrei orðið af því fyrr en nú. Það eru forsætisráðuneytið og Listasafn Einars Jónssonar sem standa að merkingunni að tillögu afmælisnefndar Jóns Sigurðssonar. Merkingin er koparplata á bakhlið fótstalls styttunnar með eftirfarandi texta: JÓN SIGURÐSSON FORSETI 17.6.1811 - 7.12.1879 Leiðtogi sjálfstæðisbaráttu Íslendinga á 19. öld. Styttuna og lágmyndina „Brautryðjandinn" gerði Einar Jónsson myndhöggvari í tilefni af 100 ára afmæli Jóns Sigurðssonar 1911. Íslendingar austanhafs og vestan gáfu styttuna. Hún var reist við Stjórnarráðshúsið 1911 en flutt á Austurvöll 1931. JÓN SIGURÐSSON Leader of Iceland´s independence movement.
Mest lesið Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Innlent Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Erlent Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Innlent Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Innlent Blóðbankinn á leið í Kringluna Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Erlent Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Viðskipti innlent Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Erlent Fleiri fréttir Tveir skjálftar yfir þrír að stærð Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Blóðbankinn á leið í Kringluna Nokkuð um hávaðaútköll Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Ráðstafanir í Reynisfjöru, tollar og lax á sjaldséðum slóðum Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Sjá meira