Átakamyndir af vettvangi frétta 15. febrúar 2010 06:00 Fréttaljósmynd ársins. Ítalskur ljósmyndari, Pietro Masturzo, hlýtur aðalverðlaunin fyrir mynd af hrópandi konu á húsþaki í Teheran, höfuðborg Írans. Konan er að mótmæla úrslitum forsetakosninganna í júní á síðasta ári. fréttablaðið/AP
AP- Sigurmynd ítalska ljósmyndarans Pietro Masturzo af konu á húsþaki í Teheran þykir bæði fögur og ná að grípa vel spennuna sem lá í loftinu í höfuðborg Írans þegar mótmælabylgjan var rétt að hefjast í kjölfar forsetakosninganna umdeildu. Þessi ljósmynd var fyrst sýnd á ítölsku sjónvarpsstöðinni RAI og síðan birt í tímaritinu Loop. „Ég trúi þessu ekki,“ sagði Masturzo þegar hann frétti af niðurstöðunni. „Ég hefði aldrei trúað því að lausamaður myndi sigra,“ en Masturzo er hvergi fastráðinn ljósmyndari. Hann fær í sinn hlut tíu þúsund evrur, eða rúmlega 1,7 milljónir króna, og forláta ljósmyndavél þegar verðlaunin verða afhent í Amsterdam í byrjun maí. Alls voru 63 ljósmyndurum frá 23 löndum veitt verðlaun í þessari virtu ljósmyndakeppni. Dómnefndin fékk það verkefni að velja úr rúmlega hundrað þúsund ljósmyndum frá 128 ríkjum, en aldrei hafa fleiri myndir verið sendar í keppnina. Flestar verðlaunamyndirnar eru frá átakasvæðum víðs vegar um heim. Fyrstu verðlaun í flokki stakra fréttaljósmynda hlaut Adam Ferguson, ljósmyndari á New York Times, fyrir mynd af konu sem leidd er á brott eftir sprengjuárás í Kabúl, höfuðborg Afganistans. Ljósmyndarar á vegum frönsku fréttastofunnar AFP hrepptu öll þrjú verðlaunin í flokki fréttaljósmyndaraða. Fyrsta sæti í þeim flokki kom annað árið í röð í hlut argentínska ljósmyndarans Walters Astrada, sem að þessu sinni fær verðlaunin fyrir myndaröð af harðvítugum átökum á Madagaskar. gudsteinn@frettabladid.is Átök á Madagaskar Fyrstu verðlaun í flokki fréttaljósmyndaraða hlaut argentínski ljósmyndarinn Walter Astrada fyrir myndir af átökum á Madagaskar. fréttablaðið/AP Sprengjuárás í Kabúl Fyrstu verðlaun í flokki stakra fréttaljósmynda fékk ástralski ljósmyndarinn Adam Ferguson fyrir þessa mynd, sem tekin var í Kabúl í Afganistan.fréttablaðið/AP Stríð er persónulegt Þessi ljósmynd, sem nefnist Stríð er persónulegt, er eftir bandaríska ljósmyndarann Eugene Richards. Hún úr ljósmyndaröð sem fékk fyrstu verðlaun í flokki mynda af samtímaviðburðum.fréttablaðið/AP Innsetningarathöfn Barack Obama er ekki beint hógværðin uppmáluð á þessari ljósmynd eftir Charles Ommanney, sem tekin var á innsetningarathöfninni í Washington fyrir rúmu ári. Myndin er úr ljósmyndaröð sem fékk fyrstu verðlaun í flokki ljósmynda af fólki í fréttum.fréttablaðið/AP
Mest lesið Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Fleiri fréttir Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Sjá meira