Innlent

Forstöðumenn starfi ekki lengur en 10 ár á hverri stofnun

Þórunn Sveinbjarnardóttir.
Þórunn Sveinbjarnardóttir. Mynd/Stefán Karlsson
Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar og segir að brjóta þurfi niður það sem hún kallar kerfismúra og skilgreina samstarfsverkefni ráðuneyta betur. Þetta kemur fram í erindi Þórunnar til þingmannanefndar sem hefur undanfarna mánuði haft til umfjöllunar skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Ráðherrum í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks annars vegar og hins vegar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar á árunum fyrir hrun var gefinn kostur á að senda þingmannanefndinni athugasemdir, upplýsingar eða svör við niðurstöðum skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Þórunn var umhverfisráðherra 2007-2009.

Þórunn vill auka flæði starfsmanna og embættismanna milli ráðuneyta. „Endurskoða þarf starfslýsingar og starfskjör með það að leiðarljósi að starfsfólk sé hreyfanlegra og nýti reynslu sína og þekkingu í fleiri en einu ráðuneyti. Ég er eindregið þeirra skoðunar að leggja þurfi af de facto æviráðningu forstöðumanna og setja tímamörk við veru manna í hverri stofnun, t.d. við 10 ár," segir Þórunn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×