Heimir: Vona að við séum gerðir úr öðru en sultu Valur Smári Heimisson. skrifar 12. september 2010 22:34 Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV. Mynd/Vilhelm
Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV var að vonum ekki sáttur eftir 2-4 tap á móti KR í Eyjum í kvöld og talaði um að það hafi verið erfitt að rífa sig upp eftir að hafa fengið mark á sig á fyrstu mínútunni. „Við vorum komnir 0-2 undir eftir bara 4 mínútur og það tók okkur góðan hálftíma að komast í gang eftir það," sagði Heimir. Heimir talaði sína menn til í hálfleik og menn mættu töluvert grimmari og með allt annað hugafar inn í síðari hálfleikinn. „Í seinni hálfleik var bara allt annað hugafar hjá mínu liði og í stöðunni 1-2 fáum við víti. Við klúðrum því en strax í framhaldinu skorum við og mér fannst við alveg vera með leikinn í okkar hendi á þeirri stundu. En svo fáum við dæmda á okkur kjánalegt víti og það slær menn aftur út. Eftir það gat þetta í raun dottið báðu megin en það datt þeirra meginn í dag," sagði Heimir. Lars Ivar Moldeskred átti stórleik í marki KR. Hann varði víti og nokkrum sinnum varði hann bæði skalla og skot af mjög stuttum færi. Hann hélt því KR-ingum inni í leiknum oft á tíðum. „Það duttu inn dauðafæri báðu megin en þetta réðst mikið á markvörslunni hjá Lars sem ver þrisvar sinnum alveg glæsilega í þessum leik. Hann var klárlega maður leiksins," sagði Heimir. Nú þurfa Eyjamenn að rífa sig upp fyrir næsta leik sem er á móti Selfoss á útivelli. „Það verður bara að koma í ljós hvort við náum ekki að rífa okkur upp fyrir næsta leik. Það er eftir áföll sem það kemur í ljós úr hverju menn eru gerðir og ég vona það að við erum gerðir úr eitthverju öðru en sultu," sagði Heimir að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Fótbolti Fleiri fréttir ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Sjá meira