Innlent

Víða þungfært

Vegasamband við Vestfirðir eru að mestu lokað frá öðrum landshlutum vegna ófærðar og ekki stendur til að ryðja í dag á vegum norðan Búðardals, hvorki vestur Barðastrandarsýslu né norður á Strandir. Svínadalurinn er þungfær og ófært er í Reykhólasveit og á Þröskuldum, nýja veginum sem átti að bæta samgöngur til Vestfjarða. Þæfingsfærð er í Ísafjarðardjúpi og á Ströndum en Steingrímsfjarðarheiði er þungfær.

Á Vesturlandi er Fróðárheiði ófær en hálka er á Vatnaleið. Ekki er þjónusta á þeim vegum í dag. Með norðausturströndinni er ófært í Öxarfirði og fyrir Melrakkasléttu, og þungfært á Hálsum og Brekknaheiði.  

Sunnanlands er þæfingsfærð vestan Kirkjubæjarklausturs.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×