Forsætisráðherra hissa á viðsnúningi stjórnarandstöðu um þjóðaratkvæði 8. janúar 2010 06:00
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að mikið þurfi að koma til til þess að þjóðin sé svipt þeim rétti sem synjun forsetans á lögum um Icesave hafi fært henni. Stjórnvöld hafi þær skyldur í þeirri stöðu sem upp er komin að undirbúa þjóðaratkvæðagreiðslu. „Ef kemur fram eindreginn vilji, bæði hjá þingi og þjóð, um að fallið sé frá þjóðaratkvæðagreiðslunni þá munum við skoða það. Ef menn sjá eitthvað nýtt í stöðunni sem gerir það að verkum að menn telja að hægt sé að setja málið í einhverja sátt, erum við tilbúin til að skoða það. En það má vera mikil breyting til að við séum tilbúin til þess." Jóhanna undrast viðsnúning stjórnarandstöðunnar. „Þessi viðsnúningur virkar mjög sérkennilega á mann. Stjórnarandstaðan lagði mikla áherslu á það á þinginu nú fyrir áramót að málið færi í þjóðaratkvæðagreiðslu." Jóhanna minnir á að Icesave hverfi ekki; sé lögunum hafnað taki lögin frá í ágúst gildi. Jóhanna hefur gert forsætisráðherrum Hollands og Bretlands grein fyrir þeirri stöðu sem hér er komin upp. Hún segir þá hafa lýst vonbrigðum, en þó sýnt því skilning að tryggja þyrfti farsælar lyktir í málinu. Þá hefur hún rætt við kollega sinn í Noregi um lán Norðurlandanna. „Ég hef sagt við alla að ég væri hvenær sem er tilbúin til að koma út og hitta þá, ef það myndi greiða fyrir málinu." - kóp
Mest lesið Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira