Vonast til að geta lesið í drauma fólks 29. október 2010 06:00 Doktor Cerf og félagar vonast til að rannsóknir þeirra verði til þess að hægt verði að lesa í drauma. Nordicphotos/afp
Bandarískir vísindamenn segjast hafa smíðað búnað sem þeir vonast til að nýtist við að ráða í drauma. Þetta kemur fram í grein sem vísindamennirnir skrifuðu í tímaritið Nature. „Við viljum geta lesið í drauma fólks,“ segir doktor Moran Cerf, sem leiðir rannsóknina. Markmiðið er að auka skilning á því hvernig og hvers vegna fólk dreymir. Draumar hafa verið fólki hugleiknir um aldir en á síðustu árum hefur sálfræði verið notuð til að skilja hvað gerist í undirmeðvitundinni þegar fólk dreymir. Hingað til hefur einungis verið hægt að spyrja fólk út í drauma þess eftir að það vaknar. Markmið rannsóknar Cerfs og félaga er að þróa kerfi sem á að hjálpa fólki að muna drauma sína. „Það eru engin skýr svör til við því hvers vegna fólk dreymir,“ segir doktor Cerf. Cerf og félagar byggja rannsóknir sínar á því að hver heilafruma sé tengd ákveðnum atburði eða hlut. Hann komst meðal annars að því að þegar fólk hugsaði um Marilyn Monroe kviknaði á ákveðnu taugaboði. Með því að sýna hópi fólks myndaseríu gátu doktor Cerf og samstarfsmenn hans einangrað nokkur taugaboð og búið til gagnagrunn fyrir hvern sjúkling. Þannig kviknaði á sömu taugaboðum ef þeir hlutir eða atburðir komu fyrir í draumum fólks. Doktor Cerf viðurkennir að ekki sé hægt að nota búnaðinn til að fanga drauma. Hann vonast þó til að niðurstöðurnar séu fyrsta skrefið í átt til þess.- kh
Mest lesið Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Erlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Sjá meira