Hlaut þyngri dóm fyrir að berja Guðmund í Byrginu 21. júní 2010 17:25
Hæstiréttur hefur dæmt Ragnar Hauksson í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ráðist á Guðmund Jónsson, fyrrverandi forstöðumann Byrgisins, eignaspjöll á bifreið Guðmundar, húsbrot og hótanir. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að hann hefði ekki klæmst við 17 ára stúlku. Héraðsdómur Suðurlands dæmdi Ragnar í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir brotin í desember á síðasta ári. Honum var jafnframt gert að greiða stúlkunni 100 þúsund krónur í miskabætur en hann var dæmdur fyrir að hafa viðhaft kynferðisleg og ósiðleg ummæli við stúlkuna sem hann húðflúraði á stofu sinni í mars 2008. Í samtali við Vísi í desember sagðist Ragnar vera hissa á dómnum. Hann áfrýjaði dómnum til Hæstaréttar sem kvað upp sinn úrskurð í dag. Ragnar er eiginmaður einnar þeirra konu sem kærðu Guðmund í Byrginu fyrir kynferðisbrot. Hann sagði fyrir rétti að hann hefði séð svart eftir að hann las dóm yfir Guðmundi sem féll árið 2008. Þar var Guðmundur dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn konum sem voru í Byrginu. Ragnar játaði fyrir Héraðsdómi Suðurlands að hafa veist að Guðmundi og hrint honum á jörðina. Í viðtali á Stöð 2 í maí 2008 sagðist Ragnar hafa hitt Guðmund fyrir tilviljun. „Vinur minn bauð mér að koma með sér í sumarbústað til þess að slaka á. En hver heldur þú að renni í hlað í næsta húsi? Guðmundur Jónsson! Ég snappaði bara," sagði Ragnar. „Ég gekk greiðlega að honum og sló hann með handarbakinu og lófanum þvert og yfir moldarbeðið. Það var bara trúin og edrúmennskan sem hindraði mig í að ganga lengra. Hefði ég hitt á hann fyrir 10 árum hefði ég drepið hann. Ég hefði framið morð á honum," sagði Ragnar sem sá ekki eftir neinu.
Tengdar fréttir Hissa á dómnum og hyggst áfrýja Ragnar Hauksson sem var sakfelldur í Héraðsdómi Suðurlands í dag fyrir ósiðleg ummæli við 17 ára gamla stúlku segist vera hissa á dómnum. 21. desember 2009 17:31 Klámfenginn húðflúrari lamdi Guðmund í Byrginu Héraðsdómur Suðurlands dæmdi húðflúrarann Ragnar Hauksson fyrir að hafa gengið í skrokk á Guðmundi Jónssyni, oft kenndur við Byrgið, á síðasta ári. Þá er hann einnig dæmdur fyrir ósiðlegt athæfi þegar hann klæmdist við sautján ára stúlku sem hann var að húðflúra. 21. desember 2009 15:13 Mest lesið Björgvin Halldórsson látinn Innlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Innlent Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Innlent Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Erlent Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Tilkynnt um þjófnað í þremur verslunum Goðsögn fallin frá Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Sjá meira
Hissa á dómnum og hyggst áfrýja Ragnar Hauksson sem var sakfelldur í Héraðsdómi Suðurlands í dag fyrir ósiðleg ummæli við 17 ára gamla stúlku segist vera hissa á dómnum. 21. desember 2009 17:31
Klámfenginn húðflúrari lamdi Guðmund í Byrginu Héraðsdómur Suðurlands dæmdi húðflúrarann Ragnar Hauksson fyrir að hafa gengið í skrokk á Guðmundi Jónssyni, oft kenndur við Byrgið, á síðasta ári. Þá er hann einnig dæmdur fyrir ósiðlegt athæfi þegar hann klæmdist við sautján ára stúlku sem hann var að húðflúra. 21. desember 2009 15:13