Íslenski boltinn

Mawejje til reynslu hjá Molde

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tonny Mawejje í leik með ÍBV.
Tonny Mawejje í leik með ÍBV. Mynd/Valli

Úgandamaðurinn Tonny Mawejje er nú til reynslu hjá norska úrvalsdeildarfélaginu Molde. Það er Fótbolti.net sem greinir frá þessu.

Mawejje var fastamaður í liði ÍBV undanfarin tvö ár og á að baki 46 leiki í deild og bikar með félaginu. Í þeim leikjum hefur hann skorað fimm mörk. Þá leikur hann einnig með landsliði Úganda.

Molde er í tólfta sæti norsku úrvalsdeildarinnar þegar tveimur umferðum er ólokið. Liðið siglir lygnan sjó og er ekki í fallhættu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×