Indriði: Þurfum að vera sterkari í hausnum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. september 2010 22:53 Úr leiknum í kvöld. Fréttablaðið/Anton
Indriði Sigurðsson segir að það hafi verið mikil synd að tapa leiknum fyrir Noregi í kvöld eftir að hafa verið með yfirhöndina að loknum fyrri hálfleik. „En eins og við spiluðum í seinni hálfleik áttum við ekki meira skilið. Það datt allur vindur úr okkur þegar við fengum á okkur fyrra markið. Í stað þess að gefa aftur í datt þetta í sundur hjá okkur." „Við vorum ekki jafn þéttir fyrir og við vorum í fyrri hálfleik. Þá vorum við að vinna boltann á hættulegum stöðum og sækja hratt á þá. Það gekk vel." „En í síðari hálfleik vorum við allt of langt frá mönnunum og fengum ekki þær opnanir sem við vildum fá." „Þetta voru margir samverkandi þættir sem höfðu þessi áhrif í kvöld. En kannski þurfum við helst að vera sterkari í hausnum og brotna ekki saman þegar við fáum mark á okkur." Ísland mætir næst Dönum ytra á þriðjudaginn kemur. „Við förum pressulausir þangað. Við tökum það jákvæða með okkur úr þessum leik og reynum að byggja á því. Það þýðir ekkert að hengja haus - eins og einhver sagði er ekkert jafn fljótt búið og gleymt eins og fótboltaleikur."
Mest lesið Styttist í að Orri Steinn verði ekki lengur stærsta sala FCK Fótbolti Hrósuðu Túfa í hástert: „Á einhvern hátt heldur maður með honum“ Fótbolti Borgarstjórinn forðast að ræða hótanir Trumps Sport „Fjölmennasti leikur sem Breiðablik hefur spilað“ Fótbolti Þurfa að losa leikmenn til að skrá Rashford Fótbolti Búinn að eyða yfir tuttugu milljörðum en segist vanta meira Fótbolti Sögunni endalausu um Gyökeres loksins að ljúka Enski boltinn Rakarastofa og sjónvarp fyrir alla í flottasta búningsklefa heims Sport Mætti með bikarinn á frumsýningu Happy Gilmore Golf „Við erum ekki á góðum stað“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Við erum ekki á góðum stað“ Enn leikmaður KR en nú lánaður til Lyngby Íþróttamaður HK til liðs við ÍA Snýr heim í toppliðið sem dreymir um Bestu Fékk útrás fyrir keppnisskapið við heimilisstörfin „Gerir þetta skemmtilegt fyrir deildina“ „Búnir að bíða í 1435 daga eftir að komast á toppinn“ Uppgjörið: Víkingur - Valur 1-2 | Valsmenn tóku toppsætið af tíu Víkingum Sjáðu sigurmark Viktors og takta Hallgríms fyrir norðan Hnéð gott og getur spilað meira: „Ég er tilbúinn“ Fór úr ökklalið og fótbrotnaði í Lengjudeildarleik Uppgjörið: KA - ÍA 2-0 | KA sendi KR í fallsæti Uppgjörið: Breiðablik-Vestri 1-0 | Blikar náðu Víkingum á toppnum Cosic skaut Njarðvík á toppinn áður en hann fer til KR Afturelding að styrkja sig fyrir seinni hlutann Víkingur afturkallar Daða Berg: Fær ekki að spila bikarúrslitaleikinn Birnir Snær genginn til liðs við KA „Bikarleikurinn sat aðeins í mönnum“ „Skemmtilegt og erfitt að spila á móti Fram“ Uppgjörið: Afturelding - Fram 1-1| Allt jafnt í Mosó Jón Páll aðstoðar Einar Leikur Grindavíkur færður vegna gossins Nýir erlendir leikmenn halda áfram að streyma í botnliðið Elvis snúinn aftur KR-ingar hafa enn ekki unnið útileik í sumar Sjáðu mörkin úr Bestu: Hetjudáðir fyrirliðans og alvöru innkoma Uppgjörið: ÍA - KR 1-0 | Skagamenn náðu fram hefndum Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan | Nauðsynlegur sigur fyrir Eyjamenn Árni farinn frá Fylki „Mikið undir fyrir bæði lið“ Sjá meira