Newcastle vann 4-3 sigur á Chelsea á Stamford Bridge Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. september 2010 18:25 Ryan Taylor fagnar marki sínu á móti Chelsea. Mynd/GettyImages
Newcastle vann 4-3 sigur á Chelsea á Stamford Bridge í 3. umferð enska deildarbikarsins í kvöld en þetta var fyrsta tap Chelsea á tímabilinu. Shola Ameobi skoraði sigurmarkið á 90. mínútu leiksins. Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, gerði tíu breytingar á byrjunarliði sínu frá því um síðustu helgi en sömu sögu var að segja af Chris Hughton, stjóra Newcastle. Það tók Chelsea aðeins sex mínútur að komast í 1-0. Sol Campbell missti boltann í sínum fyrsta leik með Newcastle, Gaël Kakuta nýtti sér það og spilaði vinstri bakvörðinn Patrick van Aanholt frían sem kom Chelsea yfir. Newcastle gafst ekki upp og Nile Ranger nýtti sér góða fyrirgjöf frá Shane Ferguson þegar hann renndi sér á boltann á fjærstöng og jafnaði leikinn. Það var ekki búið því sex mínútum síðar fékk Newcastle aukaspyrnu fyrir utan teig og Ryan Taylor tók sig til og kom liðinu í 2-1 með glæsilegri spyrnu. Carlo Ancelotti tók John Terry útaf í hálfleik og setti þá Alex og Salomon Kalou inn á völlinn. Það dugði þó lítið því Shola Ameobi kom Newcastle í 3-1. Paulo Ferreira tapaði þá boltanum til Ameobi sem lét vaða af 25 metra færi og skoraði framhjá Ross Turnbull sem átti að gera betur í markinu. Þetta var líka stutt gaman hjá Salomon Kalou sem var borinn af velli á 57. mínútu eftir að hafa tognað illa. Skömmu síðar tognaði Yossi Benayoun líka og varð að hætta sem þýddi að Chelsea var aðeins með tíu menn inn á vellinum það sem eftir lifði leiksins. Nicolas Anelka náði engu að síður að minnka muninn eftir sendingu frá Patrick van Aanholt á 70. mínútu. Alex fiskaði síðan umdeilda vítaspyrnu á 86. mínútu og Anelka jafnaði leikinn með því að skora örugglega úr vítinu. Það virtist stefna í framlengingu en dramatíkin var ekki búin. Shola Ameobi tryggði Newcastle síðan sigurinn með skallamarki eftir hornspyrnu á síðustu mínútu leiksins.
Enski boltinn Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira