Íslenski boltinn

Eggert Rafn í Leikni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sigursteinn og Eggert Rafn.
Sigursteinn og Eggert Rafn. Mynd/Heimasíða Leiknis

Eggert Rafn Einarsson hefur gengið til liðs við Leikni sem leikur í 1. deildinni. Eggert Rafn er tvítugur og uppalinn KR-ingur. Þetta kemur fram á heimasíðu Leiknis í dag.

Eggert Rafn á að baki 21 leik í deild og bikar með KR en fyrsta leikinn lék hann árið 2007, þá sautján ára gamall. Hann á að baki 31 leik með yngri landsliðum Íslands.

Eggert getur bæði leikið sem miðvörður og bakvörður. Þjálfari Leiknis er Sigursteinn Gíslason, fyrrum leikmaður og aðstoðarþjálfari KR.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×