Hermann fær líklega ekki nýjan samning hjá Portsmouth Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. maí 2010 20:13 Hermann Hreiðarsson í leik með Portsmouth. Nordic Photos / Getty Images
Ef marka má ummæli skiptastjóra enska knattspyrnufélagsins Portsmouth er Hermann Hreiðarsson í hópi þeirra sem eru á leið frá félaginu nú í sumar. Samningur Hermanns við félagið rennur út í sumar og sagði Andrew Andronikou við vefmiðilinn Soccernet að félagið myndi ekki endurnýja neina samninga nú eftir leiktíðina. Andronikou er skiptastjóri Portsmouth sem er nú í greiðslustöðvun. Liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor en mætir Chelsea í úrslitum ensku bikarkeppninnar nú um helgina. Það verður því síðasti leikur margra í liðinu. Hermann mun ekki spila í leiknum þar sem hann sleit hásin í leik með liðinu fyrr á tímabilinu. „Um helmingur þeirra sem spila í bikarúrslitaleiknum munu fara frá félaginu. Þetta er staðreynd lífsins," sagði Andronikou. „Við viljum halda hryggjarstykki liðsins en aðrir verða að fara." „Þeir sem fara skiptast í þrjá flokka - þá sem eru á lánssamningi, þeir sem eru á sölulista og þeir sem eru að renna út á samningi." „Jamie O'Hara er í láni frá Tottenham og verður sendur aftur þangað. Aruna Dindane var lánaður til félagsins frá Lens og mun nú snúa sér til þeirra. David James verður samningslaus og fær ekki nýjan samning og svo framvegis."
Mest lesið Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn „Við eigum heima í Evrópu“ Enski boltinn Má mæta í bláum gallabuxum: „Skáksambandið gerir bara það sem Magnus biður um“ Sport Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Fótbolti Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Enski boltinn Fleiri fréttir Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg Sjá meira