Innlent

Fleiri styðja samningaviðræður við ESB

Niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar þar sem spurt var um afstöðu til aðildarviðræðna við Evrópusambandið sem Capacent gerði fyrir Sterkara Ísland daganna 18. - 25. ágúst, kemur í ljós að af þeim sem taka afstöðu eru 38,8% sem styðja áframhaldandi samningaviðræður Íslands við ESB. Andvígir áframhaldandi samningaviðræðum eru 45,5%, óákveðnir eru 15,7%.

Séu þessar tölur bornar saman við sambærilega könnun sem var gerð á vegum Markaðs og miðlarannsókna í byrjun júní en þar kom fram að aðeins 24,3% vildu halda fyrirhuguðum viðræðum við ESB áfram. Þá er ljóst að fjöldi Íslendinga sem styður samningsviðræður Íslands við ESB hefur fjölgað mikið í sumar eða úr 24,3% í 38,8% sem er 14,5 prósentustig.

Að sama skapi hefur þeim sem eru andvígir samningaviðræðum fækkað en í byrjun sumars vildu 57,6% Íslendinga draga umsókn um aðild að ESB til baka, en nú í lok sumars eru 45,5 % andvígir samningaviðræðum. Á tæpum þrem mánuðum hefur því þeim sem eru andvígir aðildarviðræðum fækkað um ríflega tólf prósentustig.

„Þetta er til marks um að bilið á milli þeirra sem eru fylgjandi og þeirra sem eru andvígir samningaviðræðum sé að minnka og að það fjölgi í hópi þeirra sem vilja að þjóðin fái að taka ákvörðun um hvort Ísland eigi að ganga í ESB þegar málefnaleg umræða hefur átt sér stað og þegar samningurinn við ESB liggur fyrir," segir í tilkynningu frá Sterkara Íslandi




Fleiri fréttir

Sjá meira


×