Eyjamenn flýja með liðið sitt frá Eyjum vegna öskufallsins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. maí 2010 22:00 Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV. Mynd/Daníel
Eyjamenn þurfa að flýja Vestmannaeyjar með Pepsi-deildarliðið sitt vegna þess að öskufallið frá Eyjafjallajökli kemur í veg fyrir að liðið geti æft. Knattspyrnuráð ÍBV biðlað til atvinnurekenda í bænum um að leikmenn liðsins fái að fara til Reykjavíkur og æfa þar alla næstu viku. Eyjamenn hafa fengið leyfi til að æfa hjá Þrótti og Víði í Garði og þá hafa Grindvíkingar boðist til að taka á móti liðinu í næstu viku. Eyjamenn munu líklega fara í einskonar æfingabúðir til Grindavíkur í næstu viku. Næstu þrír leikir Eyjaliðsins eru allir á útivelli eftir að leikur ÍBV og Vals sem átti að fara fram í dag var færður yfir á Vodafone-völlinn á mánudag. Eyjamenn útskýrðu stöðu sína í fréttatilkynningu í kvöld. Fréttatilkynningin frá ÍBV: Eldgosið í Eyjafjallajökli hefur áhrif á keppnistímabil ÍBV eins og annarra íbúa í kringum gosstöðvarnar. Vegna öskufallsins undanfarið í Vestmannaeyjabæ, hefur knattspyrnuráð ÍBV farið þess á leit við atvinnurekendur í bænum að leikmenn liðsins fái að fara til Reykjavíkur og æfa þar alla næstu viku, þar sem ekki er útlit fyrir að hægt verði að æfa utandyra í Eyjum næstu daga. Þetta þýðir að leikmenn liðsins munu missa úr vinnu til næsta þriðjudags. Næstu þrír leikir liðsins eru á Höfuðborgarsvæðinu eða mánudag, fimmtudag og aftur annan mánudag. Atvinnurekendur í Eyjum hafa allir sýnt þessu mikinn skilning og orðið við beiðni ÍBV. Vill knattspyrnuráð ÍBV koma miklum þökkum til þessara aðila fyrir góðan skilning og gott samráð. Það er ekki sjálfgefið að slíkur samhugur sé sýndur meðal fyrirtækja vegna þeirra erfiðu aðstæðna sem eru komnar upp. Sú ákvörðun að skipta á heimaleikjum við Val var tekinn í góðu samráði við mótanefnd KSÍ og Val. Líklegt er að liðið muni dvelja í Grindavík eftir leikinn á mánudag í eins konar æfingabúðum, stjórn ÍBV vill þakka Grindvíkingum fyrir að taka á móti liðinu. Einnig hafa Þróttarar og Víðismenn boðist til að lána okkur vellina sína til æfinga, þessum liðum vill knattspyrnuráð ÍBV einnig koma þökkum til.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Enski boltinn Tielemans biðst afsökunar Enski boltinn Myndir af Haaland á stórri kókaínsendingu Fótbolti Skoraði þrennu á 92 sekúndum og bíður eftir staðfestingu frá Guinness Fótbolti Fabrizio Romano að hætta Enski boltinn Draumur Bolvíkinga rætist gegn risunum í íslensku golfi Golf Fleiri styðja UEFA frekar en Infantino Fótbolti Ronaldo hughreystir Messi: „Stórt faðmlag til þín og þinna nánustu“ Fótbolti 86 kíló af marijúana fundust í liðsrútunni Fótbolti Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Íslenski boltinn Fleiri fréttir ÍBV - Stjarnan | Slagurinn um þriðja sætið Víkingur - Thun | Víkingar þurfa stórsigur Elvis kominn í Bítlabæinn Nordsjælland - Valur | Lífsbarátta í Evrópukeppninni Stelpurnar tóku yfir Akureyri Hnéhlífarnar nauðsynlegar er teymi Víkings hleypur fyrir Ingvar Fögnuðu sigri og tilkynntu Úlfu Dís eftir leik Öll lið lenda í þessu Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 1-0 | Katelyn Duong hetja Blika Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Uppgjörið: Þróttur-Valur 3-2 | Fyrsti sigur Þróttar í 75 daga Uppgjörið: Fram-FH 4-6 | Ótrúleg markasúpa á Lambhagavelli Fékk atvinnutilboð erlendis og hættir með kvennalið Keflavíkur Þórsarar fá annan Víking norður Þróttarar fá Björgeyju Njálu aftur heim Keflvíkingar bæta við sig Króata Staðfestir brottför Gunnars: „Einn besti varnarmaður frá upphafi“ Ásdís Karen til FH Um ótrúlegt met KR: „Langskemmtilegustu leikirnir“ Martröðin í Kasakstan þjappaði Blikum saman Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn „Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Stúkumönnum fannst ósanngjarnt að reka Conteh út af Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Uppgjörið: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið KR-ingar geta ógnað ótrúlegu afreki Skagamanna í kvöld Sjá meira