3 tímar í fyrsta leik: Valsmenn hafa ekki skorað hjá FH í 363 mínútur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. maí 2010 16:00 Það hefur lítið gengið hjá sóknarmönnum Vals í síðustu leikjum á móti FH. Mynd/Daníel
Valur og FH leika í kvöld opnunarleikinn í Pepsi-deild karla þegar Íslandsmeistarar síðustu sex tímabila mætast á Vodafone-vellinum að Hlíðarenda. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. FH-ingum hefur gengið vel á móti Valsmönnum síðustu tvö sumur og hafa náð í öll tólf stigin í boði í innbyrðisleikjum liðanna á þeim tíma. FH-ingar eru ekki aðeins með fullt hús í þessum leikjum því þeir eru einnig með hreint mark í þessum fjórum leikjum og hafa skorað ellefu mörk í röð í leikjum liðanna. Valsmenn hafa því ekki skorað í 363 mínútur í deildarleikjum á móti FH eða síðan að þeir nánast tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn 2007 með 2-0 sigri í Kaplakrika í Kaplakrika 23. september 2007. Helgi Sigurðsson skoraði þá annað mark Valsmanna á 87. mínútu leiksins. Valsmenn skutu FH-inga af toppnum með þessum sigri fyrir tæpum þremur árum en FH-liðið hafði þá verið samfleytt í toppsætinu í 60 umferðir og 38 mánuði og það þrátt fyrir að Valsmenn hefði unnið 4-1 sigur á þeim í fyrri leiknum. Valsmenn hafa ekki náð stigi á móti FH síðan þá og Hafnfirðingar hafa fagnað tveimur Íslandsmeistaratitlum í röð. FH-markverðirnir Daði Lárusson og Gunnar Sigurðsson hafa skipt þessum fjórum leikjum með sér undanfarin tvö sumur og Daði var að auki í markinu þessar síðustu 3 mínútur í leiknum 2007. Þeir Daði og Gunnar verða ekki í marki FH í kvöld heldur Gunnleifur Gunnleifsson sem hélt einmitt hreinu síðast þegar hann mætti Val - með HK sumarið 2008.Síðustu sex innbyrðisleikir FH og Vals í úrvalsdeild karla: 20. spetember 2009 FH-Valur 2-0 2. júlí 2009 Valur-FH 0-5 13. september 2008 FH-Valur 3-0 24. júní 2008 Valur-FH 0-1 23. september 2007 FH-Valur 0-2 27. júní 2007 Valur-FH 4-1
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Eyðileggur íþróttina“ Sport „Mér líður eins og ofurkonu núna“ Sport „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Körfubolti Þrótturum mistókst að komast á toppinn Íslenski boltinn Gylfi: „Erfitt að lenda undir eftir tíu mínútur“ Fótbolti Uppgjörið: Víkingur-FC Thun 3-2 | Evrópudeildardraumurinn úti Íslenski boltinn Fyrstur til að vinna fjörutíu titla með einu félagi Fótbolti Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 3-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Íslenski boltinn Uppgjörið: Nordsjælland – Valur 5-0 | Ekki léttir í lund í Kaupmannahöfn Íslenski boltinn Íslendingaliðin Twente og Midtjylland brunuðu áfram í Evrópu Fótbolti Fleiri fréttir Markaveisla í toppslagnum og æsispennandi toppbarátta Þrótturum mistókst að komast á toppinn Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 3-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Uppgjörið: Víkingur-FC Thun 3-2 | Evrópudeildardraumurinn úti Uppgjörið: Nordsjælland – Valur 5-0 | Ekki léttir í lund í Kaupmannahöfn Elvis kominn í Bítlabæinn Stelpurnar tóku yfir Akureyri Hnéhlífarnar nauðsynlegar er teymi Víkings hleypur fyrir Ingvar Fögnuðu sigri og tilkynntu Úlfu Dís eftir leik Öll lið lenda í þessu Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 1-0 | Katelyn Duong hetja Blika Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Uppgjörið: Þróttur-Valur 3-2 | Fyrsti sigur Þróttar í 75 daga Uppgjörið: Fram-FH 4-6 | Ótrúleg markasúpa á Lambhagavelli Fékk atvinnutilboð erlendis og hættir með kvennalið Keflavíkur Þórsarar fá annan Víking norður Þróttarar fá Björgeyju Njálu aftur heim Keflvíkingar bæta við sig Króata Staðfestir brottför Gunnars: „Einn besti varnarmaður frá upphafi“ Ásdís Karen til FH Um ótrúlegt met KR: „Langskemmtilegustu leikirnir“ Martröðin í Kasakstan þjappaði Blikum saman Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn „Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Stúkumönnum fannst ósanngjarnt að reka Conteh út af Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Sjá meira