Innlent

Ökumenn til fyrirmyndar á Fornhaga

Mynd/GVA
Ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Fornhaga í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fornhaga í suðurátt, við Hagaskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 34 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða en þarna er 30 km hámarkshraði.

Brot tveggja ökumanna voru mynduð á Framnesvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Framnesveg í suðurátt, að Vesturbæjarskóla. Á einni klukkustund fóru 27 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða.

Vöktun lögreglunnar á Fornhaga og Framnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×