Wenger: Arsenal-liðið búið að losa um handbremsuna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. desember 2010 12:00 Arsenal-menn fagna einu marka sinna í gær. Mynd/AP
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, fagnaði vel fyrsta sigri liðsins á Chelsea í tvö ár þegar Arsenal vann (Lundúna)toppslaginn 3-1 í gær. Wenger sér mikil þroskamerki á sínu liði sem er að reyna að vinna fyrsta titil félagsins í fimm ár. „Fyrir tveimur árum fór Chelsea illa með okkur, við vorum að nálgast þessi lið á síðustu leiktíð og í útileikjunum á móti Chelsea og Manchester United á þessu tímabili þá fannst okkur við eiga að fá meira út úr leikjunum," sagði Arsene Wenger. „Kannski spiluðum við þessa tvo leiki með handbremsuna aðeins á en við höfum lært af þeim leikjum. (Cesc) Fabregas talaði eitthvað um að við værum hræddir við að vinna en það er alltof stórt orð. Það var kannski eitthvað óöryggi í liðinu en það sást ekki í þessum leik," sagði Wenger.Arsene Wenger kemur skilaboðum til sinna manna í gær.Mynd/AFP„Við erum að sýna meiri karlmennsku í vetur og við látum ekki vaða yfir okkur lengur. Við höfum þroskast mikið á síðustu tveimur tímabilum. Það er erfitt að spá fyrir um meistaratitilinn en til þess að vinna hann þurfum við að sanna að við getum sýnt stöðugleika," sagði Wenger. Arsenal er tveimur stigum á eftir taplausu liði Manchester United sem mætir liði Birmingham City í kvöld. „Ég er ánægður með að við erum komnir fram í desember og við erum enn í kallfæri við United. Við erum ekki langt frá þeim og ég vona að sigurinn á Chelsea sannfæri mína menn um að þeir séu á réttri leið og fái þá til að vilja bæta sig enn meira," sagði Wenger að lokum.
Mest lesið Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Fótbolti Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Fótbolti Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Formúla 1 Sjáðu ruglið í Formúlunni í morgun Formúla 1 Strákarnir sitja fastir Fótbolti Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Fótbolti Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Íslenski boltinn Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira