Fjölskylda reisir glæsihótel í Landbroti Kristján Már Unnarsson skrifar 4. janúar 2010 19:12 Kirkjubæjarklaustur. Mynd/Pjetur
Fjölskylda á sveitabæ skammt frá Kirkjubæjarklaustri keypti steypustöð og byggingarkrana, smalaði saman ættingjum og vinum, og er nú búin að byggja eitt stærsta og glæsilegasta sveitahótel landsins, sem tekur 150 manns í gistingu.Breytingin er mikil á þeim þrjátíu árum sem liðin eru frá því þau Hörður Davíðsson og Salome Ragnarsdóttur hófu að leigja gistiherbergi á bóndabæ sínum í Efri-Vík í Landbroti. Gamla íbúðarhúsið er nú notað sem móttaka fyrir tveggja hæða glæsihótel og margan ferðamanninn rekur í rogastans að sjá þarna í fámennri sveit svo vegleg salarkynni.Dóttir hjónanna, Eva Björk Harðardóttir, og tengdasonur, Þorsteinn Kristinsson, eru komin með þeim í hótelreksturinn en fjölskyldan hóf uppbygginguna á því að kaupa steypustöð og byggingakrana. Eva Björk segir að fjölskyldan hafi svo fari í steypustígvél og allir sem höfðu einhverja gráðu, vinir, ættingjar og sveitungar, teknir í vinnu, og svo hafi bara verið lagt af stað.Þarna eru nú veitingasalir fyrir 150 manns og sama fjölda er hægt að taka í gistingu, bæði á hótelinu og í smáhýsum. Spurð hvort þetta sé nokkuð offjárfesting kveður hún svo eigi ekki vera. Þau hafi gert þetta sjálf að miklu leyti og þau muni standa þetta af sér.Við hótelið eru þau búin að gera golfvöll. Gistiherbergin eru með þægindum eins og baðherbergi og flatskjá. En hvernig gengur svo að fylla þetta allt af gestum? Mjög vel, svarar Eva, og segir sumarið hafa verið yfirfullt. Markmiðið sé hins vegar að stækka enn og byggja upp heilsulind við hótelið í því skyni að fá ferðamenn til að dvelja lengur og utan háannatíma. Hún segir Ísland hafa heilmikið að bjóða ferðamönnum um vetur; það sé ævintýraland.
Mest lesið Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Erlent Einars Ólafssonar minnst í Lúxemborg Innlent „Varð að martröð“ Innlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Fleiri fréttir Einars Ólafssonar minnst í Lúxemborg „Varð að martröð“ Hrósar olíufélögunum fyrir viðbrögð sín Keyrði niður ljósastaur á Vesturlandsvegi Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Starfsemi gæti hafist í nýjum Listaháskóla innan fjögurra ára Þriðja viljayfirlýsingin frá árinu 2007 undirrituð „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Oddviti Samfylkingar bregst við færslum borgarstjóra Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt „Sá gamli er miklu fallegri“ Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum Sjá meira