Andri: Ákall til stuðningsmanna Hauka Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. september 2010 19:59 Andri Marteinsson. „
Við höfum ekki haft lukkuna á okkar bandi í sumar en það var yndislegt þegar hún loksins kom," sagði sigurreifur þjálfari Hauka, Andri Marteinsson, eftir leikinn gegn Fram í kvöld. Haukar unnu 2-1 sigur en sigurmarkið skoraði Hilmar Trausti Arnarsson á fjórðu mínútu uppbótartíma leiksins. „Okkur var farið að lengja eftir þeirri lukku sem lið hafa stundum með sér," sagði Andri. „En þetta var kaflaskiptur leikur og mér fannst Framarar betri framan af í báðum hálfleikjum. En í þeim báðum snerum við þessu á sveif með okkur og þá fannst mér við sterkari og líklegri." Fram komst yfir í upphafi síðari hálfleiks en Haukar jöfnuðu metin úr vítaspyrnu þegar 20 mínútur voru til leiksloka. „Eftir það fórum við „all-in" enda vissum við að Fylkir væri yfir í sínum leik. En þá opnuðum við okkar vörn og Framarar fengu því færi í lokin rétt eins og við. Sigurinn gat því dottið báðum megin en sem betur fer var lukkan á okkar bandi." Aðeins 402 áhorfendur voru á Vodafone-vellinum á Hlíðarenda í dag en þeir Haukamenn sem mættu studdu sína menn dyggilega. En Andri sagði það ekki hafa verið mistök að spila heimaleiki sína í Reykjavík. „Ég held að ef menn eru virkilegir stuðningsmenn þá koma þeir í góða umgjörð hér og láta fara vel um sig í stúkunni, þó svo að þeir þurfi að sitja í bíl í tíu mínútur. Þetta er því ákall til stuðningsmanna Hauka að gefast ekki upp þó að á móti blási." „Það er gaman að horfa á þessa stráka sem eru að spila með liðinu og þeir leggja sig mikið fram. En það virðist vera lenska hjá áhorfendum almennt að um leið og illa gengur snúa þeir baki við liðinu. Nú gengur ágætlega og vonandi koma því menn á næsta leik og láta sjá sig." Haukar eru nú með sautján stig í næstneðsta sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir Grindavík og fjórum á eftir Fylki sem liðið spilar við á sunnudag. Sex stig eru eftir í pottinum. „Það er meiri von í dag en eftir síðustu umferð og enn meiri en eftir þá þarsíðustu. Vonin er alltaf að styrkjast. Við vitum vel hvað við eigum eftir og við skulum segja að það styttist óðum í úrslitastundina."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Fleiri fréttir ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Sjá meira