Heimir Hallgríms: Breiðablik ræður því hverjir verða Íslandsmeistarar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. september 2010 20:05 Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV.
Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, var kátur með sína menn eftir 2-0 sigur á Selfossi í dag. ÍBV-liðið vann leikinn sanngjarnt en þurfti engu að síður að hafa mikið fyrir sigrinum. „Þetta var flottur dagur fyrir okkur Eyjamenn. Þetta var gríðarlega mikilvægur sigur því við vorum að ná markmiðum okkar sem var að komast í Evrópukeppni. Það er mikill léttir fyrir mig og fyrir klúbbinn að vera búnir að ná því tölfræðilega þótt að það hafi verið ansi líklegt fyrir leikinn," sagði Heimir Hallgrímsson eftir leikinn. „Við stefnum síðan að vinna tvo síðustu leikina og sjá hverju það skilar okkur. Blikar vinna frábæran sigur út í KR og ég óska þeim til hamingju með það. Þeir eru með þetta allt í hendi sér og þó að allir voni að þeir misstígi sig þá er það þeirra að ákveða það hvort þeiri geri það," segir Heimir sem tók undir að lið hans hafi spilað skynsamlega í kvöld. „Við lokuðum vel á þá. Þeir eru með gríðarlega skemmtilega framherja en fengu engin dauðafæri sem ég man eftir. Þetta var mjög góður leikur varnarlega hjá okkur og við hefðum átt að skora fleiri mörk. Við vorum svolitlit klaufar að klára ekki leikinn og þetta varð því spennandi leikur allan tímann," sagði Heimir en ÍBV er nú einu stigi á eftir toppliði Breiðabliks þegar tvær umferðir eru eftir. „Við getum bara hugsað um okkur og Breiðablik ræður því síðan hverjir verða Íslandsmeistarar. Þeir virðast allavegna vera í flottu formi í dag og við getum því lítið annað gert en að hugsa um það að vinna þessa tvo síðustu leiki okkar," sagði Heimir að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Leik U21 liðs Man United hætt vegna meiðsla leikmanns Enski boltinn Nýja stórstjarna Liverpool fékk ekki að hafa sjónvarp heima hjá sér Enski boltinn Labbaði í fjórtán tíma á keppnisstað og vann síðan 63 km ofurhlaup Sport Viktor Gísli fær treyju númer eitt hjá Barcelona Handbolti Fókus á bolta ekki bullur: „Á ekki að sjást í kringum fótboltaleiki“ Fótbolti Ótrúlegt golfhögg í reiðiskasti slær í gegn á netinu Golf UFC-bardagi í Hvíta húsinu á þjóðhátíðardaginn Sport Chelsea gefur fjölskyldu Jota hluta af HM-bónusunum Enski boltinn Er ekki loksins kominn tími á það að því að við vinnum Danina? Fótbolti Enska augnablikið: AGUERO!! Enski boltinn Fleiri fréttir Guðmundur í grænt Njarðvík með fjögurra stiga forskot á toppnum Uppgjörið: Valur - Stjarnan 4-2 | Rhodes með þrennu í seinni hálfleik Jón Daði skoraði fyrsta markið fyrir Selfoss í þrettán ár og Fylkir á botninum Hártog er harðbannað og ekki skylda að vera með tagl Matthías ekki lengi einsamall hjá Val Stjarnan sækir landsliðsfélaga Caulker Uppgjörið: FHL – Fram 3-2 | Fyrsti sigur FHL í hús Uppgjörið: Víkingur R – Breiðablik 2-4 | Meistararnir áfram í stuði Uppgjörið: FH – Þór/KA 5-3 | Markasúpa í Hafnafirði Heimir fær aðeins einn leik og aganefndin hittir illa á Aftureldingu KR fær þýskan varnarmann Ræddu lætin í Krikanum: „Það er helvítis hundur í Heimi“ Sjáðu frábærar afgreiðslur Sigurðar Bjarts, vítavörslur Árna og endurkomu KR-inga „Dóri verður að hætta þessu væli“ „Óreyndir dómarar sem falla í þessa gryfju“ „Leyfa því að koma og nýta það á góðan hátt sem orku“ „Var farinn að krampa upp í öllum vöðvum líkamans“ Heimir og Dean sendir í sturtu eftir læti á hliðarlínunni Uppgjörið: FH - ÍA 3-2 | Ótrúleg endurkoma heimamanna í Kaplakrika Uppgjörið: KR - Afturelding 2-1 | Mosfellingar í fallsæti eftir tap í Vesturbænum Sjáðu dramatísku sigurmörkin og Stjörnumenn skella Víkingum „Brugðumst vel við þeim aðstæðum sem leikurinn henti í okkur“ „Rýr stigasöfnun í deildinni vissulega áhyggjuefni“ Halldór: Góð ákvörðun hjá þeim að hætta spila boltanum Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 2-4 | Stjarnan sigraði Víking í viðburðarríkum leik Hallgrímur: Ef þú slakar á 1-3% er þetta fljótt að breytast Uppgjörið: Valur - Breiðablik 2-1 | Dramatískt sigurmark Vals í uppbótartíma Davíð Smári: Ánægður með orkustigið Uppgjörið: Vestri-Fram 3-2 | Vestri með sigurmark í uppbótatíma Sjá meira