Innlent

Tekist á um settan ríkissaksóknara í fyrramálið

Valur Grettisson skrifar
Lára V. Júlíusdóttir á fundi í Seðlabankanum.
Lára V. Júlíusdóttir á fundi í Seðlabankanum.

Fyrirtaka fer fram í máli níumenninganna á morgun en þá verður tekist á um hæfi Láru V. Júlíusdóttur, setts ríkissaksóknara.

Ragnar Aðalsteinsson, verjandi fjögurra af þeim níu sem ákærðir eru í málinu, vill meina að Lára sé vanhæf sem settur saksóknari í málinu vegna þess að hún er kjörin fulltrúi Alþingis í bankaráði Seðlabanka Íslands.

Lára er formaður bankaráðsins. Með því sé Lára sérstakur trúnaðarmaður Alþingis, sem sé bæði kærandi málsins og jafnframt hinn meinti brotaþoli.

Ragnar Aðalsteinsson hefur áður krafist þess að dómarinn í málinu víki vegna þess að hann hafi óskað eftir því að lögregla væri viðstödd réttarhöldin. Bæði Héraðsdómur Reykjavíkur og Hæstiréttur höfnuðu þeirri kröfu.

Fyrirtakan hefst í fyrramálið klukkan 08:30.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×