Verðhækkanir OR éta upp sparnað Landspítalans 30. ágúst 2010 19:07
Verðhækkanir Orkuveitu Reykjavíkur hækka rafmagns- og hitareikning Landspítalans um fjörtíu milljónir króna á næsta ári - og éta upp allan sparnað spítans, og meira til, en rekstrarhagnaður hans nam um 35 milljónum króna á fyrri helmingi ársins. Orkuveitan hækkar gjaldskrá sína um allt að 40% þann 1. október og kveðst knúin til þess. Þó er ekki lengra síðan en í nóvember á síðasta ári að fjármálastjórinn skrifaði grein í Fréttablaðið og sagði þar að geta Orkuveitunnar til að standa við skuldbindingar sínar væri sterk. Síðan hún skrifaði þessi orð hefur krónan styrkst umtalsvert og skuldbindingar því lækkað.Einn af stærri orkunotendum höfuðborgarinnar Þar kemur einnig fram að yfir 70% landsmanna eigi í viðskiptum við fyrirtækið. Landspítalinn er einn af stærri orkunotendum höfuðborgarinnar. Rafmagns- og hitareikningur spítalans hljóðar upp á tæpar 200 milljónir króna yfir árið en þar á bæ hafa menn skoðað hvern krók og kima í rekstrinum til að spara og meðal annars náðist fram tíu prósenta sparnaður í rafmagnsnotkun á þessu ári. Starfsfólki Landspítlans hefur tekist að spara 7,5 milljón króna með því einu að vera vakandi fyrir rafmagnsnotkun og slökkva til að mynda á tölvum og ljósritunarvélum í lok dags. Með hækkun Orkuveitunnar gufar þessi sparnaður upp og gott betur.Leiðinlegt og sárt „Við reiknum með því að á ársgrundvelli muni þetta kosta okkur um 40 milljónir króna en á þessu ári um tíu milljónir," segir Björn Zoëga, starfandi forstjóri Landspítalans. Sparnaðurinn sem náðist fram í orkunotkun á þessu ári verður því að engu. „Auðvitað finnst mér það leiðinlegt og sárt en við værum verr sett ef við hefðum ekki byrjað á þessu sparnaðarátaki okkar," segir Björn.
Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Enn skelfur í Bárðarbungu Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Fleiri fréttir Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Sjá meira