Innlent

Lára V. settur ríkissaksóknari í máli níumenninganna

Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra hefur falið Láru V. Júlíusdóttur hæstaréttarlögmanni að vera settur ríkissaksóknari í máli á hendur fólkinu sem ákært er fyrir að ráðast inn á Alþingi í búsáhaldabyltingunni.

Ákærurnar beinast að níu nafngreindum mönnum fyrir meint brot gegn Alþingi, brot gegn valdstjórninni, almannafriði og allsherjarreglu og húsbrot, með því að hafa þann 8. desember 2008, ásamt hópi óþekktra manna, ruðst í heimildarleysi inn í Alþingishúsið við Austurvöll meðan á þingfundi stóð, að því er fram kemur í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu.

Eins og greint hefur verið frá sendi Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari dómsmála- og mannréttindaráðherra bréf föstudaginn 22. janúar þar sem hann óskaði eftir því að settur yrði annar löghæfur maður til að fara með málið vegna vanhæfis síns á grundvelli fjölskyldutengsla, einn þingvörðurinn sem lenti í átökunum er hálfsystir eiginkonu hans.

„Með bréfi til Héraðsdóms Reykjavíkur, dags. 22. janúar sl., var ákæra í málinu afturkölluð þar sem í ljós kom að meðal brotaþola er þingvörður sem er hálfsystir eiginkonu ríkissaksóknara. Ríkissaksóknari er því lögum samkvæmt vanhæfur til að fara með málið og hefur því vikið sæti sbr. 26. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008," segir ennfremur í tilkynningunni.










Tengdar fréttir

Ríkissaksóknari: „Hreinlega yfirsást þetta og það er miður“

„Skýringin er sú að ég fór ekki með málið sjálfur heldur var það í höndum saksóknarans sem undirritaði ákæruna,“ segir Valtýr Sigurðsson, ríkissaksóknari, en hann þurfti að draga ákæru á hendur níu mótmælendum fyrir árás á Alþingi, til baka vegna fjölskyldutengsla við þingvörð sem lagði fram bótakröfu vegna málsins.

Lagadeild svarar Borgarahreyfingunni

Prófessor lagadeildra Háskóla Íslands, Ragnheiður Bragadóttir, hefur svarað fyrirspurn Borgarahreyfingarinnar en hún fór þess á leit við lagadeild HÍ að sérfræðingar hennar gæfu álit sitt á því hvort að ákæra skrifstofustjóra Alþingis á hendur 9 mótmælendum með tilvísun til 100 gr. almennra hegningarlaga frá 1940 væri viðeigandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×