Erlent

Hafna fyrirhuguðum breytingum

Frá Bordeaux fyrr í dag.
Frá Bordeaux fyrr í dag. Mynd/AP
Hundruð þúsunda manna mótmæltu áætlunum stjórnvalda um hækkun eftirlaunaaldurs í borgum Frakklands í dag. Víðtæk verkföll gætu leitt til eldsneytisskorts sem truflað gæti flugumferð í landinu. Trúnaðarmaður stálverkamanna hafnar breytingunum og segir að þær verði að taka mið á mun fleiri þáttum.

Hundruð þúsunda manna héldu út á götur helstu borga Frakklands í dag eins og París, Toulouse og Lyon til að mótmæla áformum ríkisstjórnar Nicolasar Sarkozy Frakklandsforseta um að hækka eftirlaunaaldur úr 60 árum í 62 ár. Þá hefur fjöldi stéttarfélaga verið í verkföllum og hafa boðað verkföll vegna þessa. Stjórnvöld segja nauðsynlegt að hækka eftirlaunaaldurinn vegna þess að franska þjóðin sé að eldast og vegna gífurlegs halla á eftirlaunasjóðum landsins.

„Við höfnum þessum breytingum á eftirlaunakerfinu. Við viljum umbætur sem taka mið af öllum þáttum, t.d. hversu erfið vinna manns er líkamlega. Í verskmiðju okkar eru menn sem starfa í málmsteypusmiðjunni og því miður eru lífslíkur þeirra stuttar. Það er dapurlegt að þeir geti ekki nýtt sér það að fara fyrr á eftirlaun, jafnvel nú þegar eftirlaunaaldurinn er 60 ár. Við viljum skoða það að fara á eftirlaun við 55 ára aldur," segir Alain Audier, trúnaðarmaður stálverkamanna.


Tengdar fréttir

Hart deilt um eftirlaunaaldur

Frakkland logar í illdeilum vegna áforma ríkisstjórnar Nicolasar Sarkozy forseta landsins um að hækka lágmarks eftirlaunaaldur úr 60 árum í 62 ár. Verkalýðsfélög í Frakklandi boða til mótmæla í dag og vona leiðtogar þeirra að milljónir manna haldi út á götur borga landsins. Verkföll hafa truflað daglegt líf í landinu undanfarna daga, þannig að sumstaðar er skortur að verða á bensíni og flug frá Orly flugvelli í París raskaðist í gær vegna verkfalls hlaðmanna. Þá er búist við að lestarsamgöngur fari úr skorðum í dag.

Hvetur almenning til að halda ró sinni

Hundruð þúsunda Frakka mótmæla nú á götum landsins þeirri ákvörðun ríkisstjórnar Nicolasar Sarkozy, Frakklandsforseta, að hækka lágmarks eftirlaunaaldur í landinu úr 60 árum í 62 ár. Gríðarlegur halli er á eftirlaunasjóðum Frakka, eða um 5000 milljarðar íslenskra króna og stefnir hallinn í 8000 milljarða árið 2020 verði ekkert að gert. Það er svipuð upphæð og talið er að erlendir kröfuhafar hafi tapað á íslenska efnahagshruninu. Stjórnvöld segja nauðsynlegt að hækka eftirlaunaaldurinn þar sem Frakkar lifi lengur en áður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×