Íslenski boltinn

Baldur Ingimar til Víkings

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Baldur Aðalsteinsson er kominn í Víkina.
Baldur Aðalsteinsson er kominn í Víkina. Mynd/Vilhelm

Víkingar hafa styrkt sig enn frekar fyrir átök næsta sumars í Pepsi-deild karla og fengið Baldur Ingimar Aðalsteinsson frá Val.

Þetta verður kynnt á blaðamannafundi sem hefst klukkan 13.30 í Víkinni. Baldur var samningslaus hjá Val og gerir tveggja ára samning við Víking.

Baldur er þrítugur Húsvíkingur sem hefur leikið með ÍA og Val hér á landi. Hann á að baki 160 leik í efstu deild og hefur skorað í þeim sautján mörk. Hann var einnig til skamms tíma á mála hjá Ürdingen í Þýskalandi.

Hann hefur leikið átta sinnum með A-landsliði Íslands, síðast árið 2008.

Víkingur vann sér sæti í Pepsi-deild karla á nýliðinni leiktíð og hefur einnig fengið Björgóld Takefusa frá KR og Pétur Georg Markan úr Fjölni.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×