Skattahækkanirnar hafa skaðað atvinnulífið 18. febrúar 2010 12:34 Bjarni Benediktsson. Mynd/GVA
Skattahækkanir ríkisstjórnarinnar hafa skaða atvinnulífið að mati Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins. Umsvif í hagkerfinu í upphaf þessa árs eru minni en áætlanir gerðu ráð fyrir að sögn fjármálaráðherra. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, spurði fjármálaráðherra meðal annars um stöðuna í efnahagsmálum í fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun. Hann gagnrýndi ríkisstjórnina fyrir metnaðarleysi í niðurskurðarmálum og fyrir að hafa einblínt of mikið á skattahækkanir til að stoppa í fjárlagagatið. „Við í stjórnarandstöðunni höfum boðist til að eiga samráð við stjórnarflokkana um það hvernig staðið verði af þessari miklu aðlögunarþörf. Hvernig staðið verði að samdrætti í útgjöldum ríkisins. Ég veit eins og allir hinir í þessum sal að þar stöndum við frammi fyrir erfiðum ákvörðunum en það má ekki bíða með að hefja þá undirbúningsvinnu vegna þess að það hleypur á tugum milljarða sem við þurfum að lækka ríkisútgjöldin," sagði Bjarni. Fram kom í máli Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, að niðurskurður og sparnaður hjá ríkinu á þessu ári sé áætlaður um 43 til 45 milljarðar. Hann vísaði því á bug að aðgerðir hafi einungis snúist um skattahækkanir. Þá kom einnig fram í máli ráðherra að umsvif í hagkerfinu í upphafi árs hafi verið minni en áætlanir gerðu ráð fyrir. „Velta og þróun á síðustu mánuðum ársins 2009 var jákvæðari en ég átti von á en það hefur hægt á hlutunum aftur á fyrstu vikum ársins og velta er minni. Það bendir til þess að árið fari að minnsta kosti hægar af stað en við mátti búast," sagði Steingrímur. „En árið fer hægar af stað en ráð var fyrirgert segir fjármálaráðherra. Ég spyr mig að því hvort það geti ekki verið að hinar miklu skattahækkanir sem komu til framkvæmda um áramótin séu einmitt að valda þessu," sagði Bjarni.
Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Innlent Framlengir vopnahléið og herkvína Erlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira