Hunsa allar viðvaranir og hótanir 10. febrúar 2010 03:30 Talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins skýrir frá áformum stjórnvalda á blaðamannafundi í gær.Nordicphotos/AFP
Leiðtogar valdamikilla Vesturlanda hafa nú árum saman reynt að hemja kjarnorkuvinnslu í Íran og óttast fátt meira en að Írönum takist að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Íranar standa fastir á því að þeir ætli sér eingöngu að nota kjarnorku í friðsamlegum tilgangi, en hafa ekki fallist á óheft eftirlit Kjarnorkueftirlitsstofnunar Sameinuðu þjóðanna til að fá það staðfest. Vesturlönd hafa samþykkt refsiaðgerðir og hóta frekari refsiaðgerðum, en Íranar láta slíkt jafnan sem vind um eyrun þjóta og fara sínu fram. Nú síðast í gær tilkynntu írönsk stjórnvöld að þau ætli að auðga úran, eins og það er nefnt, allt upp í 20 prósent hreinleika, en til þessa hefur þeim einungis tekist að auðga úran sitt upp í 3,5 prósent. Til þess að geta notað úranið í kjarnorkuvopn þarf hreinleiki þess að vera kominn upp í 90 prósent. Ramin Mehmanparast, talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, segir að það muni lítið hjálpa að Vesturlönd fái Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna til að samþykkja enn eina ályktun gegn Íran í þessu máli. „Það hjálpar ekki til við að leysa deiluna milli Írans og Vesturlanda,“ sagði hann. „Þau hafa algerlega rangt fyrir sér ef þau halda að þjóð okkar muni gefa eftir eitt einasta skref.“ - gb
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira