Fækkun kjarnaodda sett í forgang 15. nóvember 2010 04:30 Forsetarnir Barack Obama og Dimitry Medvedev náðu vel saman á fundinum. fréttablaðið/AP
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, fullvissaði Dmitry Medvedev, forseta Rússland, í gær á fundi þeirra í Japan um að það væri forgangsmál stjórnar hans að fá bandarísku öldungadeildina til að samþykkja kjarnorkuvopnasamninginn START. „Ég lagði áherslu á vilja minn til að klára START-samninginn,“ sagði Obama, sem var að ljúka tíu daga ferðalagi sínu um Asíu. Þar tók hann meðal annars þátt í leiðtogafundi G-20 ríkjanna sem fór fram í Suður-Kóreu. START-samningurinn snýst um að fækka kjarnaoddum úr 2.200 í 1.550 hjá hvorri þjóð um sig. Einnig felst í honum samkomulag um að þjóðirnar muni beita nýjum aðferðum við að rannsaka vopnabúr hvor annarrar. Samningurinn hefur mætt mótstöðu, sérstaklega hjá repúblikönum sem eru í minnihluta í öldungadeildinni. Obama og Medveded náðu vel saman á fundi sínum. Obama þakkaði Rússum fyrir samstarfið varðandi stríðið í Afganistan og þátttöku þeirra í málefnum Mið-Austurlanda og Súdan. „Það var mjög ánægjulegt fyrir mig að eiga þennan fund og ræða um alls konar málefni við kollega minn. Samstarf okkar er mjög gott og við skiljum hvorn annan mjög vel,“ sagði Medvedev. Ferðalag Obama til Asíu var það lengsta sem hann hefur farið í síðan hann varð forseti. Áður en hann lagði af stað heim á leið notað hann tækifærið og skoðaði þrettán metra háa styttu af Búdda í Japan sem var smíðuð árið 1252. Hann var sex ára þegar hann sá hana síðast. - fb
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Lögreglan bauð fimmtugum Íslendingi „gistingu með öllu inniföldu“ í fangaklefa Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Sjá meira