Barack Obama og Bill Clinton læstir úti í Hvíta húsinu 13. desember 2010 07:56
Þeir Barack Obama bandaríkjaforseti og Bill Clinton fyrrum forseti lentu í því á föstudag að vera læstir úti frá blaðamannaherbergi Hvíta hússins. Þeir félagarnir höfðu verið á einkafundi á skrifstofu forsetans þegar Clinton bauð Obama að styðja opinberlega við forsetann í skattamálum. Obama tók Clinton á orðinu og saman héldu þeir til blaðamannaherbergis Hvíta hússins. Þegar þeir komu að því voru dyrnar læstar og þeir komust ekki inn því allt starfsfólk fjölmiðlaskrifstofu forsetans var að skemmta sér á árlegu jólahlaðborði sínu. Þeir Obama og Clinton fundu loks aðstoðarkonu og spurðu hana hvort hún gæti opnað herbergið. Hún spurði á móti hvað þeir strákarnir væru að bralla. Þeir sögðust vera að leita að fréttamönnum. Hún gat svo opnað herbergið. Þá tók við annað vandamál því þegar Clinton byrjaði svo að tala við fréttamennina var alls ekki hægt að stoppa hann. Obama gafst upp eftir hálftíma og fór með þeim orðum að konan sín biði eftir sér. Það stoppaði ekki Clinton sem lét móðan mása í töluverðan tíma eftir að Obama var farinn.
Mest lesið Hvað segja veðbankarnir? Innlent Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Innlent Fleiri fréttir „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Sjá meira