Hugmynd um styttri opnunartíma gölluð 22. maí 2010 19:45
Borgarfulltrúi Vinstri grænna hefur sagt sig úr nefnd um endurskoðun opnunartíma skemmtistaða vegna óánægju með vinnubrögð nefndarinnar. Hann hyggst leggja fram tillögu um að öllum skemmtistöðum í miðborginni í nálægð íbúðabyggðar verði ekki lokað seinna en klukkan þrjú. Veitingamaður segir hugmyndina gallaða. Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi Vinstri grænna, sagði sig úr stýrihóp um afgreiðslutíma skemmtistaða í gær vegna óánægju með aðgerðarleysi hópsins, en hann hefur verið að störfum síðan í maí í fyrra. Þorleifur segir kornið sem fyllti mælinn vera íbúafund nú á fimmtudag. Fundurinn hafi ekki verið marktækur sem álit íbúa miðbæjarins þar sem hann sé litaður af hagsmunaaðilum sem tóku þátt í fundahöldunum. Hann hyggst leggja fram tillögu á borgarráðsfundi á fimmtudaginn kemur í samræmi við hugmyndir íbúa um opnunartíma skemmtistaða. Þorleifur segir þó vel koma til greina að hafa skemmtistaða opna lengur þar sem ekki er verið að trufla íbúa á nóttinni. Kormáki Geirharðssyni, veitingamanni, líst illa á að stytta afgreiðslutíma skemmtistaða til klukkan þrjú í einu vetfangi. „Ég held að við ættum að spyrja til dæmis leigubílstjóra hvort þeir geti tekið við öllu fólki klukkan þrjú og hvort lögreglan geti séð um fólkið sem kemur allt út klukkan þrjú. Það verður líka að athuga að eru nokkur þúsund fleiri að skemmta sér í Miðbænum núna samborið við það þegar síðast var opið til klukkan þrjú," segir Kormákur. Samkvæmt heimildum fréttastofu íhugar stýrihópurinn að leggja til styttingu rýmri opnunartíma skemmtistaða um alls klukkustund, úr hálfsex að morgni í hálffimm. Styttingin muni vera í áföngum um hálftíma í hvort skipti, en Kormákur segir þá leið skömminni skárri.
Tengdar fréttir Borgarfulltrúi VG vill að skemmtistaðir loki klukkan þrjú Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi Vinstri grænna, hefur sagt sig úr stýrihóp um staðsetningu og opnunartíma áfengisveitingastaða vegna óánægju með hægagang og vinnubrögð hópsins. Hann vill fara að tillögum íbúa miðbæjarins og loka skemmtistöðum klukkan þrjú. 22. maí 2010 12:22 Mest lesið Ráðist á rútubílstjóra og vegfarendur yfirbuguðu árásarmanninn Innlent Árásarmaðurinn ölvaður Íslendingur Innlent Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Innlent Hættu leit eftir þrjá tíma að þeim sem féll útbyrðis úr Norrænu Erlent Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Innlent „Samfélagsleg ábyrgð þessa fyrirtækis virðist ekki vera nein“ Innlent Sæta lögreglurannsókn vegna níðsöngva um ísraelska herinn Erlent Íranir geti aftur byrjað að auðga úran eftir nokkra mánuði Erlent Ný kirkjuhandbók og kaldar kveðjur til ferðaþjónustunnar Innlent „Langflestir Grindvíkingar búa utan Grindavíkurbæjar“ Innlent Fleiri fréttir Skýrslutökum írsku lögreglunnar lokið Veðurstofan nýtir ofurtölvu til að herma eftir hraunflæði „Samfélagsleg ábyrgð þessa fyrirtækis virðist ekki vera nein“ Óhress innviðaráðherra, öryggis- og varnarmál og ofurtölva Árásarmaðurinn ölvaður Íslendingur Ný kirkjuhandbók og kaldar kveðjur til ferðaþjónustunnar Ráðist á rútubílstjóra og vegfarendur yfirbuguðu árásarmanninn „Langflestir Grindvíkingar búa utan Grindavíkurbæjar“ Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Ráðherra vill tryggja betra eftirlit með Sjúkratryggingum Íslands Segir tölurnar sláandi og vill bregðast við „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Sósíalistar deila um peninga og metþátttaka í ólöglegri baráttugöngu Kostnaður vegna kynja- og jafnréttismála sextán milljónir Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál „Þurfum að huga að forvörnum“ Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Sjá meira
Borgarfulltrúi VG vill að skemmtistaðir loki klukkan þrjú Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi Vinstri grænna, hefur sagt sig úr stýrihóp um staðsetningu og opnunartíma áfengisveitingastaða vegna óánægju með hægagang og vinnubrögð hópsins. Hann vill fara að tillögum íbúa miðbæjarins og loka skemmtistöðum klukkan þrjú. 22. maí 2010 12:22