Innlent

Brasilísk kona fær ekki að búa hjá eiginmanninum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Mynd/ Valgarður.
Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Mynd/ Valgarður.
Mál Dayana Alves frá Brasilíu verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Dayana hefur búið hér á landi í meira en tvö ár. Útlendingastofnun ætlar hins vegar ekki að veita henni dvalarleyfi og hyggst vísa henni úr landi. Ástæðan er sú að eiginmaður hennar er á sakaskrá fyrir brot sem að hann framdi fyrir hartnær sex árum síðan. Dayana kærði þá ákvörðun til dóms- og mannréttindamálaráðuneytisins sem staðfesti ákvörðun Útlendingaeftirlitsins. Hún sá því engan annan kost í stöðunni en að stefna íslenska ríkinu fyrir héraðsdómi.

Dayana lýsti raunum sínum í viðtali við DV í febrúar síðastliðnum. „Mér líður eins og glæpamanni. Ég get ekki farið og ég get ekki unnið. Ef ég færi heim til mín að heimsækja fjölskylduna mína kæmist ég ekki aftur hingað," sagði hún þá við blaðið.

Í þrettándu grein útlendingalaga kemur fram að dvalarleyfi samkvæmt ákvæði þessu verður ekki veitt ef nánasti aðstandandi umsækjanda hefur á síðustu fimm árum hlotið dóm eða verið látinn sæta öryggisráðstöfunum fyrir brot á ákvæðum XXI.-XXIV. kafla almennra hegningarlaga, nema synjun um dvalarleyfi mundi fela í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart honum eða nánustu ættingjum hans.

Fyrrgreindir kaflar almennra hegningarlaga lúta að sifskaparbrotum, kynferðisbrotum, manndrápum og líkamsmeiðingum og brotum gegn frjálsræði manna.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×