Innlent

Þyrla kölluð út vegna hestaslyss

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið í Þorgeirsfjörð. Grunur leikur á að maður hafi fallið af hestbaki og þótti ráðlegt að óska eftir aðstoð þyrlunnar.

Frekari upplýsingar hafa ekki borist enda er símasambandið slæmt á þeim slóðum þar sem slysið varð.

Þorgeirsfjörður er fyrir norðan. Nánar tiltekið á skaganum milli Eyjafjarðar og Skjálfanda.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×