Innlent

Umhverfisstofnun rannsakar mengunarslysið á Eskifirði

Eskifjörður.
Eskifjörður.

Umhverfisstofnun mun óska eftir upplýsingum um hvort rétt hafi verið staðið að málum í tengslum við mengunarslysið á Eskifirði þegar löndunarvatn úr togara blandaðist neysluvatni bæjarbúa fyrr í mánuðinum.

Íbúar Eskifjarðar fengu ekki tilkynningu um atvikið fyrr en tæpri viku eftir að það átti sér stað. Þá hafði blóðvatnið úr togaranum verið blandað neysluvatni bæjarbúa og hafa misvísandi fréttir borist af áhrifum þess.

Vísir hefur haft eftir bæjarbúum að fjöldi manns hafi þjáðst af niðurgangi og magakveisu. Andrés Elísson fyrrverandi bæjarfulltrúi í Fjarðarbyggð sagði að ástandið hefði verið slæmt og rautt vatn hafi runnið úr krönum. Hann sagði ábyrgðina liggja hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands og fór fram á að menn yrðu dregnir til ábyrgðar.

DV hefur svo eftir Haraldi Briem sóttvarnarlækni í dag að ekki rétt hafi verið staðið að málum.

„Um þessa atburðarás vil ég segja að boðskipti hafi gengið of stirðlega fyrir sig og ekki í samræmi við verklagsreglur sem reynt hefur verið að setja. Það er auðvitað engin afsökun að um sumarleyfistíma er að ræða og mikið um mannaskipti. Það er einboðið að fara þurfi yfir þetta mál og reyna að færa til betri vegar," sagði Haraldur Briem í viðtali við DV.

Kristinn Már Ársælsson, upplýsingafulltrúi Umhverfisstofnunar, segir að stofnunin muni kalla eftir upplýsingum um málið og það verði skoðað. Málið er ekki á borði heilbrigðisráðuneytisins þar sem það fellur undir mengunarvarnarlög sem heyra undir Umhverfisráðuneytið.






Tengdar fréttir

Mengunarslys í Eskifirði: Ekki of seint brugðist við

Bæjaryfirvöld í Fjarðarbyggð segja ekki hafa verið brugðist of seint við mengunarslysi sem varð á sunnudaginn fyrir viku þegar löndunarvökvi úr skipi blandaðist drykkjarvatni bæjarbúa. Bréf var sent til bæjarbúa í gær vegna málsins.

Blóðvatn á Eskifirði: Heilbrigðiseftirlitið átti að loka veitunni

Andrés Elísson fyrrverandi bæjarfulltrúi í Fjarðarbyggð gagnrýnir heilbrigðiseftirlitið harðlega eftir að blóðvatn lak í vatnsveitubæjarins í byrjun mánaðarins. Hann segir að eftirlitið hafi gefið grænt ljós á vatnsveituna eftir að hafa bara tekið sýni á einum stað. Nokkrum dögum síðar hafi hundrað til tvö hundrað manns verið með niðurgang og fólk farið á spítala í kjölfarið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×