Innlent

Gyrðir og Ísak tilnefndir til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs

Gyrðir Elíasson
Gyrðir Elíasson
Gyrðir Elíasson og Ísak Harðarsson eru tilnefndir til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2011.

Gyrður er tilefndur fyrir smásagnasafnið Milli trjánna en Ísak fyrir ljóðabokina Rennur upp nótt. Uppheimar gáfu báðar bækurnar út á síðasta ári.

Dómnefnd velur verðlaunahafa á fundi sem haldinn verður í Ósló 12. apríl 2011 og sama dag verður tilkynnt um niðurstöðuna.

Verðlaunin verða afhent á Norðurlandaráðsþingi í Kaupmannahöfn í byrjun nóvember á næsta ári.

Athygli vekur að Noregur og Svíþjóð ákváðu að tilnefna á þessu ári sama verkið eftir norska rithöfundinn Beate Grimsrud.

Aðrir sem tilnefndir eru til verðlaunanna eru:

Danmörk:

Josefine Klougart

Stigninger og fald

Skáldsaga, Rosinante, 2010

Harald Voetmann

Vågen

Skáldsaga, Gyldendal, 2010

Finnland:

Erik Wahlström

Flugtämjaren

Skáldsaga, Schildts, 2010

Kristina Carlson

Herra Darwinin puutarhuri (Herr Darwins trädgårdsmästare)

Skáldsaga, Otava, 2009 (Svensk oversættelse, Janina Orlov)

Noregur:



Beate Grimsrud

En dåre fri

Skáldsaga, Cappelen Damm, 2010

Carl Frode Tiller

Innsirkling 2

Skáldsaga, Aschehoug, 2010

Svíþjóð:

Beate Grimsrud

En dåre fri

Skáldsaga, Albert Bonniers Förlag, 2010

Anna Hallberg

Colosseum, Kolosseum

Ljóðasafn, Albert Bonniers Förlag, 2010

Færeyjar:



Tóroddur Poulsen

Útsýni (Utsikt)

Ljóðasafn, Mentunargrunnur Studentafelagsins, 2009, (Sænsk þýðing, Anna Mattsson)

Grænland:

Kristian Olsen Aaju

Kakiorneqaqatigiit (Det tatoverede budskab)

Skáldsaga, Forlaget Atuagkat, 2010

Álandseyjar:

Sonja Nordenswan

Blues från ett krossat världshus

Skáldsaga, PQR-kultur, 2009

Samíska tungumálasvæðið:

Kerttu Vuolab

Bárbmoáirras (Paradisets stjerne)

Skáldsaga, Davvi Girji OS, 2008




Fleiri fréttir

Sjá meira


×