Innlent

KR - sport dæmt til að greiða Samson tæpar sex milljónir

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Björgólfur Guðmundsson var eigandi Samsonar. Mynd/ Hari.
Björgólfur Guðmundsson var eigandi Samsonar. Mynd/ Hari.
KR-sport var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmt til að greiða þrotabúi Samsonar tæpar 5,9 milljónir með dráttavöxtum. Styrktarsamningur sem gerður var milli Samsonar, sem var eignahaldsfélags í eigu Björgólfs Guðmundssonar, og KR-sport er þannig rift að hluta til.

Þrotabú Samsonar krafðist þess að KR - sport myndi greiða þrotabúinu 11 milljónir króna vegna styrktargreiðslna sem voru inntar af hendi árið 2007.

Dómurinn féllst á kröfur þrotabúsins að hluta, eða að KR-sport skyldi endurgreiða eina greiðsluna.

Nánar verður fjallað um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×