Innlent

Sakar ríkisstjórnina um ófaglegar ráðningar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Bjarni Benediktsson segir ófaglega staðið að ráðningum. Mynd/ GVA.
Bjarni Benediktsson segir ófaglega staðið að ráðningum. Mynd/ GVA.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, vill ekkert fullyrða um það hvort skipan Runólfs Ágústssonar í embætti Umboðsmanns skuldara hafi verið pólitísks eðlis. Árni Páll viðurkenndi í samtali við fjölmiðla í gær að hann og Runólfur væru kunningjar en þau tengsl hefðu ekki haft áhrif á skipan í embættið.

Bjarni segir þó að það hafi skort á fagmennsku við ráðningar í stjórnarráðinu í tíð starfandi ríkisstjórnar. „Þegar saman er tekið það hvernig staðið hefur verið að mannaráðningum í stjórnarráðinu frá myndun þessarar ríkisstjórnar - og sá langi listi skoðaður - þá er ekki annað hægt en að sjá mjög ákveðið mynstur sem fer mjög á skjön við yfirlýsingar forystumanna ríkisstjórnarinnar um aukið gegnsæi og fagmennsku við mannaráðningar," segir Bjarni Benediktsson.

Hann vill ekki greina frá hvaða stöður hann eigi sérstaklega við. „Það verður bara hver að skoða það fyrir sig. Þetta er langur listi af fólki. Þetta eru margar ráðningar án auglýsinga. Mönnum hefur verið vikið frá sem hafa starfað áratugum saman í stjórnarráðinu til að koma öðru fólki að án auglýsinga," segir Bjarni.

Bjarni segir ekki vera sérstakt tilefni til þess að draga hæfi mann í efa fyrir það eitt að þeir hafi með einhverjum hætti tengst stjórnmálaflokkum. „En þegar þessi langi listi er skoðaður þá finnst mér nú dragast upp nokkuð skýr mynd. Það er bara þetta heildaryfirbragð á mannaráðningum í stjórnarráðinu sem ég er að vísa til," segir Bjarni. Hann bendir auk þess að á ráðning forstjóra Íbúðalánasjóðs sé ófrágengin. Þar hafi stjórn Íbúðalánasjóðs vilja ráða ákveðinn umsækjanda en ráðuneytið óskað eftir því að málið fengi að bíða.

Ekki náðist tal af Þórunni Sveinbjarnardóttur, þingflokksformanni Samfylkingarinnar, vegna málsins og Skúli Helgason varaformaður þingflokksins er staddur erlendis í sumarfríi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×